|
Einungis eru þekkt 68 umslög
með skildingafrímerkjum á, 14 þeirra eru í einkaeigu, hin 54 í
eigu safna. Umslagið er einstakt fyrir að vera hið eina þekkta
þar sem notað er 3ja skildinga frímerki. Það ber eitt 2ja
skildinga merki ásamt pari af 3ja skildinga frímerkjum,
samanlagt átta skildingar, en það var burðargjaldið til
Danmerkur á tímabili skildafrímerkjanna frá 1873-1875. Bréfið er
sent frá Reykjavík þann 17. júní og er komið til Kaupmannahafnar
ellefu dögum síðar, eða 28. júní sama ár. Í bók sinni “Íslensk
frímerki í 100 ár” segir Jón Aðalsteinn Jónsson í umfjöllun
sinni um bréfið að ártalið sé óþekkt. Árið 1873 voru gefin út
skildingafrímerki með eftirfarandi verðgildum: 2 skildingar; 3
sk.; 4 sk.; 8 sk. og 16 sk. Innanbæjar burðargjald var á þessu
tímabili 2 skildingar, 4 skildingar fyrir innanlands póst, 8
skildingar undir almennt bréf til Danmerkur og 16 skildingar
fyrir bréf sem vógu meira en 15 grömm. Ástæða fyrir lítilli
notkun 3ja skildinga frímerkja er talin vera vegna þess að ekki
var sérstök þörf fyrir það verðgildi nema fyrir bréfasendingar
til Noregs (burðargjald 13 skildingar) og Frakklands (19
skildingar). |