|
Ný uppboðslisti frá Thomas
Hojland
Nýr uppboðslisti kom í hús
nýlega frá uppboðsfyrirtæki Thomasar Hojlands. Það teljast
alltaf stórtíðindi hjá Íslands-söfnurum þegar þessi listi kemur
í hús og oftast er eftirvæntingin mikil þegar rennt er í gegnum
uppboðslistann í fyrsta sinni. Því miður verður að segjast að
kaflinn um Ísland olli mér persónulega nokkrum vonbrigðum, þó
auðvitað megi finna góða hluti innan um. Nokkuð úrval er af bæði
skildinga- og auramerkjum þó ekki finnist nein aurabréf í þetta
skiptið. Einnig má finna tvö "þrír" frímerki tökkuð 14, annað
yfirstimplað með upprunastimplinum "Hraungerði", hitt með
Reykjavíkur stimpli. Vert er að geta umslags með Kristjáni IX 5
aur grænum sent frá Reykjavík árið 1910 til Dönsku Vestur Indiu.
Auk þess er á uppboðinu eitt númerabréf með "126" (Brjámslækur)
á 50 aura lanslagsmerki frá 1925 og ágætu peningabréfi stílað á
Halldóru Bjarnadóttur frá Djúpavogi sent 1927.
BS
|