|
Laugardaginn 16. desember
næstkomandi
verður haldinn hinn árlegi jólafundur. Hann byrjar klukkan 15:00
og gert er ráð fyrir að fjörinu sloti um 17:00. Margt
skemmtilegt verður á dagskrá, eins og t.d. getraun og happdrætti
svo eitthvað sé nefnt. Ekki má gleyma margrómuðu kaffi og
meðlæti. Við hvetjum alla til að mæta og eiga með okkur notalega
jólastund í afslöppuðu andrúmslofti.
Jólanefndin!
|