|
Næstkomandi
föstudag verður frímerkjasýningin Frímsýn haldin í tilefni að
degi frímerkisins. Þeir sem ætla sér að sýna söfn sín eru
vinsamlega beðnir um að koma með efnið fimmtudaginn 5. október á
milli kl. 17:00 – 19:00. Sýningin verður opnuð stundvíslega
föstudaginn 6. október klukkan 17:00 og opin fram til klukkan
21:00. Fulltrúar Íslandspóst mæta á föstudeginum til að stimpla. Á laugardaginn verður opið frá klukkan 11:00 – 15:00 og
eru frímerkjasafnarar hvattir til að mæta með efni sitt eins og
venja er til þann dag. Það lítur út fyrir að það kenni margra
grasa á sýningunni, við eigum von á póstsögulegum söfnum auk
mótífsafna, en það kemur allt betur í ljós á sýningunni sjálfri.
Við hvetjum alla til að mæta.
|