Fréttir

Um félagið

Starfsáætlun

Ganga í félagið

Gestabók

Félagatal

Uppboð og skipti

Frímerkjasöfnun

Áhugaverðir tenglar

Myndir

 

 

 

 

Alþjóðleg frímerkjasýning á Spáni - Niðurstöður Íslendinga

 

 

Dagana 6.-13. október var haldin á Spáni heimssýningin "espana 06". Þrír Íslendingar þeir Árni Gústafsson, Hjalti Jóhannesson og Sveinn Ingi Sveinsson áttu söfn á sýningunni, en Árni var einnig umboðsmaður sýningarinnar hér á landi. Gengi okkar manna var bæði upp og niður. Jákvæðustu fréttirnar hljóta að teljast einkun Sveins Inga, en hann hlaut 80 stig og Vermail. Aldrei hefur íslenskt númerastimplasafn fengið jafn háa einkunn á alþjóðasýningu að því er fróðustu menn telja. Sveinn fékk 78 stig á SvíþjóðarNordiu í fyrra og er því að bæta sig um tvö erfið stig á milli sýninga sem verður að teljast mjög góður árangur. Við óskum Sveini til HAMINGJU! Árni fékk stórt Vermail og 85 punkta, sem verður að teljast mjög viðunandi, sérstaklega þegar haft er í huga að punktarnir voru einungis 81 á heimssýningunni í Washington fyrr á árinu. Vonbrigði voru hins vegar með safn Hjalta, en hann hlaut að þessu sinni einungis 80 stig og Vermail. Þegar þessi orð eru skrifuð er ekki vitað nákvæmlega hvernig einkunin er til kominn, en það verður forvitnilegt að grenslast fyrir um það hvernig eitt safn getur fallið um heila 6 punkta milli heimssýninga.

 
 

Aftur í fréttir    Back to news