Fréttir

Um félagið

Starfsáætlun

Ganga í félagið

Gestabók

Félagatal

Uppboð og skipti

Frímerkjasöfnun

Áhugaverðir tenglar

Myndir

 

 

 

 

Indriði Pálsson heldur fyrirlestur

 

 

Þann 19. október næstkomandi klukkan 20:00 heldur Indriði Pálsson fyrirlestur um gullverðlaunasafn sitt “Ísland 1838-1903”. Er óhætt að segja að mikil tilhlökkun og eftirvænting ríki meðal frímerkjasafnara enda ekki á hverjum degi sem við fáum að berja annað eins verðlaunasafn augum. Auk þess fáum við einstakt tækifæri til þess að safna í sarpinn um rétt vinnubrögð í sambandi við uppsetningu og frágang frímerkjasafna þótt fyrirlesturinn fjalli ekki beint um það efni, en þess má geta að Indriði fékk undantekningarlítið fullt hús stiga fyrir uppsetningu.

 
 
 

Aftur í fréttir    Back to news