Fréttir

Um félagið

Starfsáætlun

Ganga í félagið

Gestabók

Félagatal

Uppboð og skipti

Frímerkjasöfnun

Áhugaverðir tenglar

Myndir

 

 

 

 

Námskeið í uppsetningu á frímerkjasöfnum

Það má segja að félagsstarfið byrji af miklum krafti þetta starfsár. Tveimur dögum eftir fyrirlestur Sigurðar ætlar Fanney Kristbjarnardóttir að halda stutt og hnitmiðað námskeið í uppsetningu á frímerkjasöfnum með hjálp forritsins “Page Maker”. Námskeiðið fer s.s. fram laugardaginn 9. september og hefst klukkan 10:00 stundvíslega. Nokkur tölvuþekking er áskilin, og gott væri ef sem flestir sæju sér fært að mæta með fartölvur. Þeir sem ekki hafa forritið “Page Maker” nú þegar í tölvum sínum, mæti hálftíma fyrr. Þeir sem ekki hafa yfir fartölvum að ráða eru einnig hvattir til að mæta, það er allt í lagi að horfa yfir öxl annarra.

 
 
 
 

Aftur í fréttir     Back to news