|
Nýr Ebay fræðahópur um
íslensk frímerki
Stofnaður hefur verið á
heimasíðu www.ebay.com nýr
fræðahópur um allt sem viðkemur íslenskum frímerkjum. Þegar
þessi orð eru skrifuð eru meðlimir orðnir 17 og fer fjölgandi
með degi hverjum. Ýmislegt er til umræðu, sem dæmi má nefna:
1) Nýtt Esperanto merki
2) Falsaður númerastimpill "287"
af N1a gerð
3) Blekógildingin 5 á þjónustu
auramerki
4) Vatnajökuls leiðangurs-umslög
5) Skákumslög og
heimsmeistaraeinvígið 1972 í Reykjavík
Allir geta gengið í
fræðahópinn og er þarna kominn vettvangur fyrir áhugasama
frímerkjasafnara til þess að skiptast á skoðunum og viðra nýjar
uppgötvanir og áhugaverða hluti sem þeir rekast á, hvort heldur
sem er á internetinu eða í sínum eigin frímerkjaklúbbum. Til að
fara inná fræðahópinn er farið á heimasíðu ebay og ýtt á
"Community" ofarlega á síðunni. Á þeirri síðu sem þá kemur upp
er ýtt á "Groups". Þá kemur upp síðan "Group center", þar er ýtt
á "stamps". Koma þá ýmsir frímerkjahópar í ljós, en þið farið á
"I", fræðahópurinn kallast á ensku "Icelandic postal history ".
Einnig er mögulegt að fara inná síðuna með því að smella á:
http://groups.ebay.com/forum.jspa?forumID=1600004087
|