|
Afmælissýning Félags
frímerkjasafnara haldinn 21. mars 2007 Fundarstaður:
Síðumúli 17, fundartími: 12:30-14:00
Sveinn lagði fram skissur að
uppsetningu ramma, púlta og annarra borða í sýningarsal.
Samkvæmt þeim hugmyndum rúmast 106 rammar í Norður helmingnum.
Þar verða eingöngu frímerkjarammar. Fyrir miðju er gert ráð
fyrir sölubási Íslandspósts ásamt tveimur borðum, annars vegar
fyrir Thorvaldsenfélagið og hins vegar veglegt félagsborð Félags
frímerkjasafnara. Í Suðursal er gert ráð fyrir bæði púltum og
römmum, þeas blandað sýningarefni sem höfðar til breiðari hóps.
Farið var yfir verkefnalista
þann er Brynjólfur lagði fyrir. Panta þarf móttöku fyrir
setninguna á fimmtudeginum með formlegum hætti undirritað af
bæði formönnum FF og MÍ. Brynjólfur tekur að sér að skrifa það.
Bréfið skal senda á Hildi Kjartansdóttir hjá Reykjavíkurborg.
Brynjólfur ræddi við Lilju Árnadóttur hjá þjóðminjasafni
Íslands. Þar eru einungis 3-4 eikarpult (60x120 cm) laus til
útlans í október. Gunnar Rafn minntist á að spyrja Vilhjálm hjá
Íslandspósti hvað orðið hefði að púltunum sem Póstminjasafnið
sáluga hafði til umráða á sínum tíma. Árni Gústafs kannaði
Kiwanis salinn í Engjateigi. Hann ætlar að panta salinn fyir
kvöldverðin á laugardeginum og velja í framhaldinu matseðil
kvöldsins. Gestur ætlar að ræða við Magna varðandi veislustjórn.
Eiríkur og Kristinn ætla að ítreka erindið við Anton í
Seðlabankanum en gert er ráð fyrir að SÍ verði með opið hús á
Kalkhúsveginum amk á laugardeginum. Eiríkur og Kristinn ætluðu í
framhaldinu að kanna hvort SÍ ætti laus púlt okkur til umráða.
Söluborð fyrir einstaklinga í Iðnó fylgja í leigunni en leysa
þarf dræma lýsingu í salnum. Rætt var um að útvega nokkra
ljóslampa. Kanna á hvort Íslandspóstur vilji útbúa
gúmmísérstimpil fyrir ReykSýn 07. Brynjólfur spyr Vilhjálm út í
það í framhaldinu. Auk þess kom upp sú hugmynd að útbúa
minnispening ca 50 stykki sem hver myndi kosta uþb 2.000 kr.
Þeir verða til sölu ásamt öðrum varningi á félagsborði FF í
miðju salar. Ákveðið var að sýningarskrá yrði lítill
fjórblöðungur og kemur til með að birtast í frímerkjablaðinu sem
gefið verður út rétt fyrir sýningu (1. okt). Rætt var um að tala
við Pál Pálsson varðandi hópmyndatöku eða að semja við einn af
meðlimum að leysa það mál. Stjórn FF mun ákveða sín á milli
hvaða einstaklingar verða heiðraðir sérstaklega í tilefni
tímamótanna. Árni Gústafs gengur til samninga við Sigurð P.
varðandi verðlaun. 3 nýjar umsóknir voru samþykktar á fundinum.
Merki sýningar verður hannað út frá mótívi verðlaunapeninga/minnispeninga.
|