|
Afmælissýning Félags
frímerkjasafnara haldinn 31. mars 2007 í Ráðhúsi Reykjavíkur frá
kl. 12:30-14:00
Byrjað var á því að ræða
hugmynd frá Gunnari Rafni um að stytta sýningarhelgina og byrja
á föstudeginum. Sú tillaga var lögð undir atkvæðagreiðslu og
felld með meirihluta atkvæða.
Ákveðið var að dagskrá
afmælisshelgarinnar verði í stórum dráttum eftirfarandi:
Miðvikudagur:
12:00-22:00, sýning sett upp.
Fimmtudagur:
8:00-14:00, sýning sett upp. Klukkan 16:00 setur borgarstjóri
Rvíkur sýninguna í þröngum hópi sýnenda og meðlima FF og MÍ.
Hópmyndataka af meðlimum FF. Sýningin opnuð almenningi kl.
17:00.
Föstudagur: Sýning opin
frá 8:00-19:00. Vonir standa til að Seðlabanki Íslands verði með
seðlasýningu sína opna fyrir almenning.
Laugardagur: Sýning
opin frá 12:00-18:00. Aðrir dagskrárliðir: Markaðshús og
flóamarkaður í Iðnó frá kl. 13:00-17:00. Söluborð fyrir
einstaklinga, borðið kostar 2.000 kr. Kolaportið opið frá
11:00-17:00. Kvöldverður (Banquet) og verðlaunaafhending.
Sunnudagur: Sýning opin
frá 12:00-17:00. Sýning tekin niður klukkan upp úr fimm.
Kolaportið opið frá 11:00-17:00.
Þjóðskjalasafnið verður 125
ára á þessu ári og Þjóðskjalavörður ræddi málið við Gunnar Rafn
um hvort ekki væri möguleiki á að sýna eitthvað af þeirra góðu
hlutum. Gunnar tók vel í það og því vonumst við til þess að fá
þeirra góðu hluti á sýninguna.
Brynjólfi var sett það fyrir
að ræða við Þjóðskjalasafnið varðandi það að fá lánuð púlt fyrir
myntsöfn og önnur borðsöfn.
Fyrir næsta fund var Sveini,
Brynjólfi og Kjartani sett fyrir að teikna upp ramma og púlt og
leggja þau gögn fyrir á næsta fund.
Þetta prógram verður fljótlega
lagt fyrir meðlimi afmælisnefndarinnar og þýtt yfir á ensku og
komið fyrir á heimasíðunni. Auk þess var rætt um að lita
afmælistengilinn rauðan á heimasíðu FF til að gera hann meira
áberandi en nú er.
|