|
Ágætu fundargestir !
Starf félagsins hefur tekið
nokkrum breytingum sl. starfsár en þó hafa félagsfundir verið
haldnir annan fimmtudag hvers mánaðar auk þess sem opið hús
hefur verið á hverjum laugardegi allt árið.
Helstu atburðir ársins voru
sem hér segir:
Á aðalfundi 16. mars 2006 var
Brynjólfur Sigurjónsson kosinn formaður félagsins. Aðrir sem
kosnir voru í stjórn voru: Jón Ingi Sigursteinsson, Steingrímur
Björnsson, Árni Gústafsson, Kjartan Kárason og Sveinn Ingi
Sveinsson.
Á fyrsta stjórnarfundi var
Sveinn Ingi valinn varaformaður, Árni Gústafsson gjaldkeri og
Kjartan Kárason ritari, Jón Ingi Sigursteinsson varamaður og
Steingrímur Björnsson meðstjórnandi.
Í maí var haldið stórt uppboð
með 156 númerum.
Engir félagsfundir voru yfir
sumartímann, en opið hús engu að síður á laugardögum. Starfið
byrjaði síðan af krafti í september.
Sigurður Pétursson fræddi
okkur um hvernig setja skuli upp frímerkjasöfn til sýninga á
fyrsta vetrarfundinum þann 7. september. Vel var mætt enda
margir áhugasamir um að sýna söfn sín er fram í sækir.
Tveimur dögum eftir
fyrirlestur Sigurðar hélt Fanney Kristbjarnardóttir stutt og
hnitmiðað námskeið í uppsetningu á frímerkjasöfnum með hjálp
forritsins “Page Maker”. Sex einstaklingar mættu.
6-7. október var
frímerkjasýningin Frímsýn 2006 haldin. Íslandspóstur sendi
fulltrúa til að spimpla í tilefni af Degi frímerkisins. Þarna
mátti meðal annars líta tvö söfn sem ekki höfðu sést áður, en
það voru söfn þeirra Magnúsar Sigurðssonar um sænska
lestarstimpla og Don Brands um Færeyjingahöfn.
19. október hélt Indriði
Pálsson fyrirlestur um gullverðlaunasafn sitt “Ísland
1838-1903”. Um 30 manns mættu og var gerður góður rómur að þessu
framtaki.
Önnur stórkanóna heimsótti
okkur 11. nóvember, Ebbe Eldrup og hélt fróðlegan
laugardagsfyrirlestur um póststimpla á Kristjáni IX. Rúmmlega 20
meðlimir mættu til að hlusta á Ebbe.
Safnaramarkaður var haldinn
daginn eftir þann 12. nóvember í samvinnu við
Myntsafnarafélagið.
Laugardaginn 16. desember var
jólafundur félagsins haldinn. Fundarstjóri var Sveinn Ingi
Sveinsson. Fundurinn var með venjubundnu sniði, en þó breytt út
af fundartíma og byrjaði fundurinn klukkan þrjú í stað átta að
kvöldi. Margir lögðu hönd á plóginn og voru það
frímerkjakaupmennirnir Bolli og Steingrímur sem gáfu vinninga í
happdrætti, ásamt góðum stuðningi frá Íslandspósti hf sem er
aðalstyrktaraðili fundarins með gjöfum sínum. Ekki var úthlutað
úr minningarsjóði Sigurðar Ágústssonar, en enginn unglingur
hefur komið fram sem þótt hefur uppfylla þau skilyrði sem sett
eru fyrir styrkveitingu.
Á janúarfundi var stór
flóamarkaður með yfir 200 númerum. Hann var vel sóttur og
seldist meirihluti efnisins.
Á febrúarfundi (15. febrúar
nánar tiltekið) kom Eðvarð T. Jónsson frá frímerkjasölu
Íslandspósts hf. og flutti fréttir af frímerkjaútgáfum
Íslandspósts hf. árið 2007 og ræddi um nýjungar sem fram undan
væru. Þessi fundur var mjög gagnlegur söfnurum.
Á öllum félagsfundum voru
haldnir flóamarkaðir.
Nokkur fækkun hefur orðið í
félaginu á yfirstandandi starfsári enda var tekin ákvörðun um aðhaldsaðgerðir þar eð um 30
manns höfðu ekki borgað félagsgjöld í 3 ár eða lengur. Hafa
verður í huga að hver sendur greiðsluseðill kostar 280 kr, hvert
Safn um 100 kr og aðildargjöld hvers félaga að LÍF er 500 kr. Í
dag fá um 190 meðlimir Safnið, en við stefnum að því að koma
virkum meðlimafjölda í 250-300 eftir afmælissýninguna í október.
Þokkaleg aðsókn hefur verið í
Síðumúlann á laugardögum og er töluvert um ný andlit. Nokkrir
hafa gengið í félagið á starfsárinu.
Umsjón með húsi: Enginn sérstakur hefur
séð um umsjón með opnu húsi á laugardögum, en Kristmundur
Hannesson hefur séð um að opna húsið klukkan 13:00. Árni Gústafsson sér eins og áður
um kaffiveitingar á
félagsfundum.
Sýningar félagsmanna: Félagar í
FF sendu söfn sín á Nordiu 2006 í Finnlandi og var útkoma góð.
Einnig sendu sömu einstaklingar söfn sýn á alþjóðlega sýningu í
Malaga á Spáni, Sveinn og Árni fengu góða útkomu en Hjalti fékk
óverðskuldaða einkun að flestra mati.
Samstarf við Íslandspóst:
Samstarf við Íslandspóst hefur verið gott á liðnu starfsári.
Frímerkjasalan hefur keypt auglýsingu af félaginu og styrkt það
með því að kaupa helstu verðlista. Auk þess kosta þeir nú
heimasíðu Félags frímerkjasafnara
www.frimerki.is/ff. Á
heimasíðunni er að finna flestar grunnupplýsingar um FF auk
fróðleiks um frímerki og frímerkjafræði. Ábyrgðamaður að síðunni
var Brynjólfur Sigurjónsson.
Safnaradagar: Safnaradagur voru
haldnir tvisvar á sl. ári. Þeir hafa verið haldnir í samvinnu
við Myntsafnarafélag Íslands. Þeir voru allir haldnir í Síðumúla
17 og eru menn almennt sammála um ágæti þessara daga.
Styrkur úr Frímerkja- og
póstsögusjóði Á síðastliðnu starfsári fékk félagið úthlutað úr
Frímerkja- og póstsögusjóði vilyrði fyrir 900.000 krónum. Þessi
styrkur er ætlaður til að standa straum af afmælissýningunni í
október á þessu ári.
Safnið: Safnið komið út alls 188 sinnum, 8 sinnum á árinu 2006 og
hefur komið út þrisvar sinnum á þessu ári og er útlit fyrir að
það muni koma út áfram með svipuðu sniði. Nokkru meiri metnaður
hefur verið lagður í Safnið á þessu starfsári aðallega með minni
fræðigreinum og 1-2 litmyndum. Kostnaður hefur í kjölfarið
hækkað nokkuð eins og sjá má á reikningum félagsins. Það hefur
því verið nokkuð ánægjuefni að forstöðumenn Íslandspóst hf. hafa
auglýst á baksíðu blaðsins, en virði þeirrar auglýsingar stendur
að stórum hluta til undir útgáfu Safnsins.
Ýmis verkefni liggja fyrir,
er þar helst að nefna afmælissýninguna í október komandi. Nú er
ljóst að meðlimir í Islandssamlarna koma til með að fjölmenna
til okkar, þeir gera ráð fyrir 40 manna hópi, og vonandi sjáum
við annað eins frá öðrum þjóðum.
Fyrir hönd FF
Brynjólfur Sigurjónsson
|