|
Þann 18. janúar næstkomandi,
klukkan 20:00 er fyrirhugað að halda stórt uppboð að Síðumúla
17. Uppboðsnefnd gerir sér vonir um að bjóða upp á milli 150-200
númer og ráðgert er að það taki um 1-2 klst. Árni (gjaldkeri)
kemur til með að bjóða upp á kaffi og meðlæti í hléi. Enn er
möguleiki fyrir þá sem áhuga hafa á að koma efni á uppboðið að
setja sig í samband við meðlimi uppboðsnefndarinnar: Sveinn Ingi
Sveinsson s: 557 9330, Gísli Geir Harðarsson s: 553 2509 og
nýjan meðlim nefndarinnar Gest Baldursson s: 848 4918.
|