Fréttir

Um félagið

Starfsáætlun

Ganga í félagið

Gestabók

Félagatal

Uppboð og skipti

Frímerkjasöfnun

Áhugaverðir tenglar

Myndir

 

 

 

 
Uppboð hjá Thomas Höiland Auktioner A/S í Kaupmannahöfn.

 

 
 

Dagana 22.-24. febrúar n.k. verður haldið hefðbundið uppboð á frímerkjum og öðru tengdu efni hjá Thomas Höiland Auktioner A/S í Kaupmannahöfn. Að þessu sinni er óvenjulega mikið af góðu og áhugaverðu efni frá Íslandi, m.a. mjög mörg gömul umslög, aurabréf og góð kóngabréf. Sýnishorn á meðfylgjandi mynd. Búist er við að þessir góðu hlutir seljist fyrir hátt verð, en það er líka möguleiki að gera góð kaup. Fastir viðskiptavinir fyrirtækisins hafa þegar fengið sendan sölulista (katalóg), en aðrir geta fengið lista sendan frá fyrirtækinu gegn greiðslu. Ennfremur er hægt að skoða listann á heimasíðu fyrirtækisins www.THauctions.com og jafnframt bjóða í og fylgjast með boðum í einstök uppboðsnúmer. Nánari upplýsingar veitir Össur Kristinsson í símum 5554991 og 6984991.

 
 

 
 

Aftur á forsíðu     Back