|
Afmælisörk FF
Undirbúningur fyrir
afmælissýninguna 11.-14. október næstkomandi er í algleymingi um
þessar mundir. Sýningarörkin hefur verið hönnuð í samvinnu við
Frímerkjasölu Íslandspósts og sést útkoman hér fyrir neðan. Um
er að ræða mótíf af Friðriki VIII sem Íslandspóstur notaði í 250
kr. örk sem hönnuð er í tilefni af degi frimerkisins. Með
upprunalegu örkinni frá Íslandspósti fylgir eftirfarandi
fróðleikur:
"Kristján
konungur IX færði Íslendingum stjórnarskrána 1874 og féllst á
þingræði í Danmörku 1901. Sonur Kristjáns tók við ríkinu sem
Friðrik VIII. Hann hafði áratugum saman gegnt konunglegum
skyldum og þekkti vel til málefna Íslands. Hann bauð öllu
Alþingi í kynnisferð til Danmerkur sumarið 1906 og boðaði komu
sína til Íslands sumarið eftir. Í lok júlí 1907 komu gestirnir
til Reykjavíkur á tveimur skipum og var herskip til fylgdar. Frá
Reykjavík var farið með gestina í vikuferð á hestum um
Suðurland. Hátíð var haldin á Þingvöllum með nær sex þúsundum
gesta. Leiðin lá síðan til náttúruperlanna Geysis og Gullfoss.
Þar var á fossbrúninni skálað í kampavíni fyrir „framtíð Íslands
sem iðnaðarlands“. Ekkert var sparað til að gera
konungsheimsóknina sem eftirminnilegasta. Á heimleið frá
Reykjavík heimsótti konungur kaupstaði hinna landsfjórðunganna:
Ísafjörð, Akureyri og Seyðisfjörð. Erfitt samningaferli hófst
með þingmannaförinni 1906 en á tólf árum leiddi það til
niðurstöðu sem fáa óraði fyrir í upphafi: fullveldis Íslands
1918." Hægt
verður að kaupa örkina bæði númeraða og ónúmeraða, auk þess sem
við gerum ráð fyrir að hægt verði að fá hana dagsstimplaða á
meðan á sýningunni stendur. Gaman er að geta þess að einn
sýnenda, Johnny Pernerfors frá Svíðþjóð, kemur til með að sýna
póstkortasafn frá konungsför Friðriks VIII árið 1907. |