|
Biblíubréfið kemur heim
Margt góðra safna verða til
sýnis á komandi frímerkjasýningu REYKSÝN 2007 11.-14. október
næstkomandi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Áhugaverðasti einstaki
hluturinn verður að teljast "Biblíubréfið", en það ber heiti
sitt vegna þess að það er sagt hafa fundist í gamalli fjölskyldubiblíu árið 1972, eða
97 árum eftir að það var sent. Bréfið tilheyrir safni Douglas Storckenfeldt greifa frá Svíþjóð, en hann keypti
það inní safn sitt fyrir 1,6 milljónir sænskra króna árið 2005
af uppboðsfyrirtæki í Sviss.
Einungis 14 skildingaumslög
eru þekkt í einkaeigu og aðeins þrjú þeirra bera þjónustufrímerki líkt
og Biblíubréfið. Ekkert umslaganna 14 ber jafn mörg frímerki, en
á Biblíubréfinu eru þau 23 talsins. Bréfið er sent frá
landfógeta til sýslumannsins í Árnessýslu. Bréfið er fylgibréf með peningaböggli sem vóg
10 pund og 82 kvint. Sú þyngd var yfir þeim þyngdarmörkum sem
gangandi póstburðarmenn á þeim tíma máttu ganga með og því er
ljóst að bréfið og pakkinn sem fylgdi með hafa verið borin í
hestalest. Bréfinu fylgdi peningaböggull með 75 krónum sem skipt var niður í 10,
5, 2ja og eins aura peningamynt, en það jafgilti 37 ríkisdölum og 48
skildingum árið 1875.
|