Fréttir

Um félagið

Starfsáætlun

Ganga í félagið

Gestabók

Félagatal

Uppboð og skipti

Frímerkjasöfnun

Áhugaverðir tenglar

Myndir

 

 

 

 

Heimasíða Exponet tileinkuð frímerkjasöfnum

 

Margt gott og uppbyggjandi fyrir okkur frímerkjasafnara má finna á veraldarvefnum þegar grant er að gáð. Dæmi um slíkt er heimasíðan http://www.japhila.cz/hof/. Hún er tileinkuð fallega uppsettum frímerkjasöfnum víðsvegar að úr heiminum. Hér er um afar góðan hugmyndabanka að ræða fyrir þá sem áhuga hafa á því að setja safn sitt upp til sýningahalds. En heimasíðan nýtist einnig fróðleiksfúsum lesendum sem áhuga hafa á því að víkka sjóndeildarhring sinn og setja sig inní frímerkjasögu fjarlægra heimshorna. Síðunni er haldið uppi með er styrk frá menningarráðuneyti Tékklands. Það yljar okkur stjórnarmönnum um hjartaræturnar að sjá að sumar ríkisstjórnir heimsins taka frímerkjasöfnun alvarlega.

 
 
 

Aftur á forsíðu     Back