|
Skipspóstur – Saso Andonov
Næstkomandi fimmtudag klukkan
20:00 heldur Saso Andonov fyrirlestur fyrir okkur sem hann
nefnir “Icelandic shipmail and transiting ports of call”. Saso
mun fjalla um algengustu skipsleiðir fyrir póst sem sendur var
út fyrir landsteinana frá 1873-1928. Farið verður í reglur
Alþjóða póstsambandsins varðandi meðferð póstfarms í fyrstu
erlendu viðkomuhöfn skipa. Eftir fyrirlesturinn er kaffi og
meðlæti til sölu á vægu verði og síðan flóamarkaður að vanda. |