|
Brúarstimpillinn "Saurbær
Borg" seldur á THonline fyrir metfé

Föstudaginn 6. júní lauk afar
áhugaverðu uppboði á
www.Thonline.dk en þar var brúarstimpillinn "Saurbær Borg"
boðinn hæstbjóðanda. Stimpillinn hefur ekki áður komið fyrir
augu brúarstimplasafnara og er jafvel talinn vera sá eini
þekkti. Listaverð stimpilsins í Facit verðlistanum frá 2006 er
2.000 sænskar krónur, eða um 20.000 íslenskar krónur. Það verð
reyndist vera mikið vanmat þar sem lokaverð stimpilsins á
uppboðinu var 15.500 danskar krónur, eða rétt rúmar 200.000 ísl.
kr. Ekki er vitað til þess að stakur íslenskur stimpill á
frímerki hafi áður selst fyrir aðra eins upphæð. Það má ljóst
vera að um þessar mundir hækkar verð á póstsögulegum hlutum með
álíka hraða og Kínverks hlutabréf. Þess má að lokum geta að
kaupandinn er frá einu Norðurlandanna. |