|
Fundur haldinn að Síðumúla 17,
16. júní 2007 frá 12:30-13:30. Fundarmenn: Brynjólfur
Sigurjónsson, Kjartan Kárason, Árni Gústafsson, Magnús
Sigurðsson og Sveinn Ingi Sveinsson.
1. Tillögur
varðandi reglur um heiðursfélaga, gull-, silfur-, og bronsmerki
félagsins lagðar fram og val á heiðursfélögum fyrir
afmælissýninguna í október næstkomandi ræddar. Eftirfarandi
reglur voru lagðar fram og samþykktar samhljóða:
Reglur um merki og
viðurkenningar Félags Frímerkjasafnara
Bronsmerki
Bronsmerki félagsins
geta allir meðlimir félagsins fengið keypt.
Silfurmerki
Allir sem setið hafa í stjórn félagsins í a.m.k. tvö ár, fá
afhent silfurmerki. Einnig má úthluta silfurmerki til þeirra,
sem hafa að mati stjórnar FF unnið félaginu mikið gagn.
Gullmerki
Einstaklingar sem
gegnt hafa trúnaðarstörfum til margra ára fyrir hönd félagsins
með góðum árangri, að mati sjórnar, eru sæmdir gullmerki. Einnig
má veita gullmerki þeim einstaklingum, sem hafa að mati stjórnar
félagsins sýnt framúrskarandi árangur í útbreiðslustarfi á
frímerkjasöfnun. Gullmerki er ávallt afhent við virðulega
athöfn.
Heiðursfélagi FF
·
Æðsta
viðurkenning Félags frímerkjasafnara er nafnbót heiðursfélaga.
·
Heiðursfélagar geta þeir einir orðið sem áður hafa hlotið
gullmerki og sýnt hafa frábæran dugnað og áhuga í störfum sínum
til eflingar félaginu um langan tíma.
·
Stjórn
FF velur á stjórnarfundi þá einstaklinga sem til greina koma sem
heiðursfélagar. Heiðursfélagi skal sæmdur heiðursmerki FF og fá
um leið formlega viðurkenningu við virðulega athöfn.
·
Heiðursfélagi er kjörinn ævilangt, og er hann undanþeginn
greiðslu árgjalda. Honum er ekki skylt að starfa í nefndum
félagsins, en hann nýtur allra sömu réttinda og aðrir
félagsmenn.
2. Einnig
þótti nauðsynlegt að koma á leiðbeinandi reglum varðandi
uppboðsnefnd félagsins. Eftirfarandi tillaga var samþykkt:
Reglur varðandi uppboðsnefnd Félags frímerkjasafnara
1.
Uppboðsnefnd heyrir beint undir stjórn Ff.
2.
Ákvarðanir varðandi uppboðsgjöld og aðrar greiðslur
tengdar uppboðum eru teknar af stjórn Ff.
3.
Tveir til þrír einstaklingar skipa uppboðsnefnd hverju
sinni, valdir af stjórn Ff.
4.
Meðlimir uppboðsnefndar borga eingöngu uppboðsgjald af
seldum uppboðsnúmerum. Aðrir seljendur borga fast gjald fyrir
hvert uppboðsnúmer, hvort sem það selst eður ei. Kaupendur borga
ekki uppboðsgjald.
5. Uppoðsnefnd sér um gerð uppboðslista hverju sinni.
Auk þess var ákveðið að kanna möguleika á
því að auglýsa félagsfundina og flóamarkaðina/uppboðin í
Morgunblaðinu. Það kostar innan við 1.000 kr. í hvert skipti og
ætti að vekja meiri áhuga á félaginu útávið og ýta frekar á
félagsmenn að mæta.
3. Þór
Þorsteins ætlar að bjóða Íslandsvinum á afmælissýningunni næsta
haust uppá kynningu á Þjóðskjalasafninu á föstudeginum (12.
okt.). Hann er tilbúinn að
undirbúa slíka kynningu einnig fyrir Íslendinga ef vilji er til
þess. Þór fór þess á leit við formann að kanna áhuga á slíkri
heimsókn. Frekari ákvarðanir verða teknar að slíkri könnun
lokinni.
4. Kaup
á nýrri fartölvu rædd í tengslum við auglýsingabækling BT, en
ákveðið að bíða með þau kaup fram á haustdaga.
|