Fréttir

Um félagið

Starfsáætlun

Ganga í félagið

Gestabók

Félagatal

Uppboð og skipti

Frímerkjasöfnun

Áhugaverðir tenglar

Myndir

 

 

 

 

Afmælissýning Félags frímerkjasafnara           Fundur haldin 25. ágúst 2007

 

    Fundarstaður: Síðumúli 17, fundartími: 12:30-14:00 Fundarmenn: Brynjólfur, Eiríkur, Árni, Sigurður, Kjartan, Magnús, Sveinn, Kristinn og Gunnar Rafn.

 

1. Kristinn fékk skilaboð frá húsverði Ráðhúss um að það verður kynning/fundur í Ráðhúsi Rvíkur á miðvikudegninum kortamegin fram til klukkan 17:00. Fundarmenn voru sammála um að þessi staðreynd breytti ekki miklu varðandi uppsetningu á sýningunni, þar eða hægt er að setja upp sýninguna hinum megin í salnum fram til klukkan fimm.

2. Púlt. Töluverð vandamál hafa komið upp með að útvega púlt, við höfum nú þegar vilyrði frá Þjóðskjalasafninu um lán á 3-4 púltum. Gunnar Rafn hringdi meðan á fundi stóð til Sveins á Kálfskinni og ætlar hann að senda okkur fljótlega eftir helgi 7 púlt sem geymd eru Norðan heiða.

3. Boð hafa borist í gegnum LÍF að fá tvo af helstu frímerkjafræðingum  Svíþjóðar, þá Bengt Bengtsson og Jonas Hällström til að koma á ReykSýn 07 að dæma og halda námskeið og fyrirlestra varðandi sýningarhald og dóma. Þeir koma með fræðibækur sem þeir eru tilbúnir að selja þeim sem á námskeiðin koma. Gert er ráð fyrir að þeir verði með almennt námskeið um sýningahald frá 09:00-13:00 laugardaginn 13. október. Á sunnudeginum er gert ráð fyrir sellufundi fyrir þá sem áhuga hafa á því að gerast dómarar.

4. Rit um Íslandspóststimpla. Fyrir fundinn lá fram bréf frá Gesti sem ekki gat mætt á fundinn, það var svohljóðandi:

Sælir,

Ég kemst því miður ekki á fundinn, frekar en fyrri daginn.  Sendi því hér með smá ágrip af því sem ég hef verið að gera.

“Brúar-, rúllu- og vélstimplar Íslandspósts hf.” er vinnuheiti bókarinnar sem við Þór Þorsteins höfum unnið að.  Áætlaður útgáfudagur er “fyrir sýningu”, enda ritið unnið og gefið út í nafni félagsins.  Bókin er “sjálfstætt framhald” fyrri bóka Þórs um stimpla og póstafgreiðslur og eflaust kærkomið yfirlit fyrir marga, enda stimplasöfnun orðið algengt söfnunarsvið meðal safnara.  Öll rannsóknar- og heimildarvinna hefur farið fram og flest atriði og dagsetningar á hreinu.  Einnig hefur tekist að fá/finna afstimplanir allra stimpla sem teknir hafa verið í notkun í nafni Íslandspósts hf. frá stofnun hans 1998.  Íslandspóstur sjálfur á ekki einu sinni heildstæða skrá yfir þessa flóru (skrýtið?) og er þetta því jafnkærkomið rit fyrir þá og okkur. 

Stefnan er tekin á 250 eintök, í gorma-formi (eins og fyrri bækur), þó þessi verði að öllum líkindum minni um sig (í blaðsíðum talið þ.e.a.s.).  Auglýsingargrein fyrir frímerkjablaðið næsta verður klár fyrir deadline, skrifuð af Þór sjálfum.  Einnig mun hún verða auglýst í Safninu, sem og á heimasíðunni okkar.  Eftir samtöl við félaga okkar í Skandinavíu, munu Johnny og co einnig minnast á hana í sínum fréttabréfum. 

Baráttukveðjur,

 

5. Afmælisrit. Sveinn og Kjartan vinna að gerð þess og skv. þeim gengur vinna við það vel. Rætt var um að hafa það í A4 broti og talað um að reyna að hafa efnistök öllu léttari en verið hefur í síðustu afmælisritum með fleiri myndum og áhugaverðum viðtölum við safnara. Auk þess verða kaflar um sýningar, húsakynni, fræðslufundi, umslagaútgáfu, uppboð og annað tengt sögu FF. Auk þess listi yfir stjórnarmenn og þá sem hlotið hafa heiðurmerki FF.

6. Dómarar þurfa að fá titilblöð safna fyrir dóma eigi síðar en 10. september 2007 skv. Sigurði. Brynjólfur ætlar að taka að sér að senda sem flestum sýnendum skeyti.

7. Samþykkt nýrra safna: Hallvard Slettebö, Mike Schumacher, Jón Ólafsson, Kristinn Sigurðsson, Eiríkur Líndal, Sigfús Ólafsson, Guðmundur Þórðarson, Magnús Sigurðsson, Gunnar Rafn Einarsson.

8. Önnur mál: rætt um hverjum skal senda boðskort, talið eðlilegt að senda borgarstjórninni, og öðrum framámönnum boðskort. Fréttagreinar í dagblöð og fjölmiðla til að auglýsa upp sýninguna, þarf að útbúá flótlega, Kjartan og Brynjólfur ásamt Gunnari Rafni ætla að semja þær greinar. Rætt um að útbúa fána til að flagga utan við ráðhúsið. Kjartan ætlar að kanna verð. Velja þarf platta fyrir heiðursfélaga, auk þess var lögð inn pöntun fyrir gull- og bronsmerki FF.

 

 
 
 
 

Aftur á forsíðu     Back