Fréttir

Um félagið

Starfsáætlun

Ganga í félagið

Gestabók

Félagatal

Uppboð og skipti

Frímerkjasöfnun

Áhugaverðir tenglar

Myndir

 

 

 

 

Sjaldséður kórónustimpill

Þessi stimpill fannst á uppboðsvef í Noregi fyrir stuttu. Um er að ræða kórónustimpilinn Úlfljótsvatn í Grafningi (í Árnessýslu) en hann var sendur til notkunar þangað frá Reykjavík 16. janúar 1895 og notaður á Úlfljótsvatni fram til árs loka 1901, eða í 6 ár. Í byrjun árs 1902 var stimpillinn tekin í notkun í Villingavatni og notaður þar fram til miðs árs 1903 er númerastimpillinn "170" var tekin í notkun í stað kórónustimpilsins. Stimpillinn er merktur í Facit með RRR en þannig eru allra sjaldgæfustu kórónustimplarnir merktir. Þess má geta að það er íslenskur safnari sem festi kaup á stimplinum.

 

 
 
 
 

Aftur á forsíðu     Back