|
Uppboðsfyrirtæki í frímerkjum og mynt
Nýtt uppboðsfyrirtæki er að hefja starfsemi
hér á landi nánar tiltekið 8. október. Nafn fyrirtækisins er
myndað úr nöfnum þeirra sem standa að fyrirtækinu en það eru
þeir Árni Þór Árnason og Saso Andonov og verður það Arnason &
Andonov ehf. Fyrirtækið mun fyrst og fremst helga sig
frímerkjum, mynt og seðlum en einnig listaverkum til að byrja
með.

Aðstandendur fyrirtækisins eru Saso Andonov
sem hefur fengist við frímerkja og myntsölu undanfarin 10 ár
ásamt kennslu við University of Maryland, University College og
í viðskiptafræðum við Háskóla Íslands. Hann er hagfræðingur
ættaður frá Makedoníu. Árni Þór Árnason rak fyrirtækið
Austurbakka hf. umboðs og heildverslun um árabil og hefur verið
öflugur frímerkjasafnari undanfarin ár. Þarna sameina þeir
þekkingu og áhuga-mál og vonast til að geta fyllt bil sem er
fyrir hendi á markaðnum, bæði heima og erlendis. Fyrsta uppboðið
verður haldið 18. nóvember næstkomandi í Iðnó frá klukkan 10:00
- 17:00. Aðsetur fyrirtækisins er á Austurströnd 1 annarri hæð á
Seltjarnarrnesi og opnunartími er frá kl 10 til 16.30 eða eftir
samkomu-lagi.
Heimasíða hins nýstofnaða fyrirtækis er:
www.aa-auctions.is/
|