|
Fræðslufyrirlestur um brúarstimpla
Fimmtudaginn 15. nóvember kl. 20:00
Næstkomandi fimmtudag mun Jóhannes Sigmarsson
flytja fyrirlestur um brúarstimpla, en þeim hefur hann safnað
frá árinu 2003. Hann sýndi safn sitt á ReykSýn 2007 í fimm
römmum og gaf þar að líta marga áhugaverða perluna.
Hjálparhellum á Reyksýn 2007 og keppendum
í kynningardeild verða afhent verðlaun í byrjun fundar.
Kaffi og meðlæti verður til sölu á vægu verði eftir fyrirlestur
Jóhannesar og síðan verður farið í flóamarkað í boði
uppboðsnefndar, en þar verður m.a. boðið upp póstkort með
tölustimpli 154.
|