Fréttir

Um félagið

Starfsáætlun

Ganga í félagið

Gestabók

Félagatal

Uppboð og skipti

Frímerkjasöfnun

Áhugaverðir tenglar

Myndir

 

 

 

 

Sýningarskrá

REYKSÝN 2007

11.-14. október 2007

 

Frímerkjasýningin REYKSÝN 2007 er haldin í tilefni af 50 ára afmæli Félags frímerkjasafnara, sem stofnað var þann 11. júní 1957. Sýningin er haldin í samstarfi við Myntsafnarafélag Íslands.

 

Á sýningunni eru frímerkjasöfn sýnd í 6 samkeppnisdeildum, kynningardeild og heiðursdeild. Samkeppnisdeildirnar eru hefðbundin deild, póstsögudeild, erlend deild – póstsaga, eins ramma deild, opin deild og bókmenntadeild. Söfnin eru metin samkvæmt ákveðnum reglum og eru gefin stig fyrir uppbyggingu, mikilvægi safnsins, þekkingu á viðfangsefninu, ástandi efnisins, sjaldgæfni og framsetning/uppsetningu.

 

Verðlaun eru veitt fyrir eftirfarandi stig:

Gull 85 stig og yfir.

Stórt Vermeil 80 stig.

Vermeil 75 stig.

Stórt silfur 70 stig.

Silfur 65 stig.

Silfrað brons 60 stig.

Brons 55 stig.

Vottorð fyrir þátttöku undir 55 stig.

 

 

Heiðursdeild

 

Rammi 1-7.

Iceland until 1901 – The skilding and original aur values.

Douglas Storckenfeldt, Svíþjóð. 7 rammar.

Markmið sýnandans er að sýna fyrstu tvær íslensku frímerkjaútgáfurnar; skildinga- og auramerki án yfirprentana. Sýnd eru bæði þjónustufrímerki og venjuleg frímerki, prufuprentanir auk ótakkaðra frímerkja. Frímerkjaútgáfurnar eru sýndar bæði stimplaðar og óstimplaðar, auk arka og arkarbúta. Þetta safn inniheldur meðal annarra góðra hluta hið fræga “Biblíubréf”.

 

 

Hefðbundin deild

 

Rammi 8-15.

Island 1873-1943.

Johnny Pernerfors, Svíþjóð. 8 rammar.

Sýnd eru í safni þessu bæði venjuleg íslensk frímerki og þjónustumerki frá tímabilinu 1873-1943. Sérstök áhersla er lögð á galla í prentplötum og mótum, mistök í afþrykkingu frímerkja, pappírsgalla þeirra ásamt afbrigðum í vatnsmerki.

 

Rammi 16-20.

Islandske Varianter 1873-1936.

Carl Simonsen, Danmörk. 5 rammar.

Markmið sýnanda er að gefa yfirlit yfir helstu afbrigði á íslenskum skildingamerkjum,  auramerkjum og kóngamerkjum. Nákvæm staðsetning frímerkja í 100 frímerkja örkum er leidd útfrá mismunandi afbrigðum af mikilli nákvæmni og vandvirkni. Safnið hefur ekki áður verið sýnt á Íslandi.

 

Rammi 21-25.

Íslensk bréfspjöld.

Sigtryggur Eyþórsson, Ísland. 5 rammar.

Sýnd eru notuð og ónotuð bréfspjöld, sem gefin voru út á tímabilinu 1879 til 1920. Einnig eru prufuprentanir og afbrigði sýnd í safninu. Áhugaverðir hlutir í safninu eru póstsendingar til fjarlægra staða í heiminum.

 

Rammi 26-30.

Postal stationary of Iceland.

Ulla Olson, Svíþjóð. 5 rammar.

Safn þetta sýnir íslensk bréfspjöld frá 1879 og fram undir miðja tuttugustu öldina. Safninu er raðað upp eftir handbók Sigurd Ringström frá árinu 1985. Aðallega eldri bréfspjöld eru sýnd. Sérstök áhersla er lögð á afbrigði í prentun bréfspjaldanna ásamt mismunandi stimplagerðum sem notaðir voru á tímum bréfspjaldanna.

  

 Rammi 31-36.

Iceland Two Kings.

Stig Österberg, Svíþjóð. 6 rammar.

Í þessu safni eru sýnd tveggja kónga frímerki sem gefin voru út árið 1907, bæði á stökum merkjum og á bréfum. Gefið er greinargott yfirlit yfir stimpla á tvíkóngaútgáfunum, bæði frá Íslandi og erlendis frá.

 

Rammi 37-41.

Silhuetutgåvan 1911/1912 inkl provisorier.

Leif Nilsson, Svíþjóð. 5 rammar.

Í safni þessu eru sýndar útgáfurnar tvær af Jóni Sigurðssyni og Friðriki VIII sem gefnar voru út 1911 og 1912. Dæmi eru sýnd af upprunastimplum (elstu íslensku stimplarnir), kórónustimplum (notaðir frá 1891-1901) og brúarstimplum sem notaðir voru frá og með 1930 á fyrrnefndum útgáfum. Auk þess er erlendum stimplum einnig gerð góð skil. Þetta er í fyrsta sinn sem Leif sýnir safnið.

 

 

Póstsögudeild

 

Rammi 42-49.

Póstsaga Þingeyjarsýslu 1823-2002.

Eiður Árnason, Ísland. 8 rammar.

Eiður hefur sett upp safn sem sýnir póstsögu Þingeyjarsýslu. Í safninu eru m.a. póstsendingar áður en fyrstu íslensku frímerkin voru gefin út og flest allir stimplar sem notaðir hafa verið í sýslunni. Safnið flokkast undir svokallað átthagasafn.

 

Rammi 50-54.

Icelandic antiqva and lapidar cancels.

Hjalti Jóhannesson, Ísland. 5 rammar.

Hjalti er orðinn vel þekktur bæði innanlands og utan fyrir “upprunastimplasafnið” sitt, enda hefur hann sýnt það um margra ára bil við góðan orðstýr. Safninu er skipt niður milli þeirra fáu stöðva sem notuðu þessa fyrstu íslensku stimpla. Sýnd eru eintök stimpla bæði á stökum frímerkjum og umslögum. Hér er marga perluna að finna.

   

Rammi 55-59.

Icelandic shipmail

Árni Gústafsson, Ísland. 5 rammar.

Árni sýnir í fyrsta sinn skipsstimplasafnið á landssýningu. Aðal áherslan er lögð á frímerkt umslög sem send voru út fyrir landsteinana og sýndir erlendir leiðarstimplar á íslenskum bréfum, aðallega breskir stimplar og frá Norðurlöndunum.

 

Rammi 60-65.

Annorlunda makuleringar av isländska frimärken samt brev i, till o från Island.

Per-Olof Abrahamsson. Svíþjóð. 6 rammar.

Hér er gefið greinargott yfirlit yfir íslensk frímerki, stök og á bréfum, sem send voru til og frá Íslandi. Kastljósinu er beint að notkun frímerkja sem frábrugðin eru venjulegri notkun, auk þess sem við fáum einnig að sjá óvenjulega stimpla. Er í því sambandi aðallega verið að vísa til erlendra stimpla á íslenskum merkjum auk annarra notaðra stimpla eins og stimplanna “Ítrekað”, “Bílpóstur” og “Tollur”.

 

Rammi 66-70.

Island Nummerstämplar 1903-1970.

Leif Nilsson, Svíþjóð. 5 rammar.

Þetta er annað safnið sem Leif sýnir á ReykSýn og hér eru það númerastimplar sem leika aðalhlutverkið. Sýndir eru 296 mismunandi stimplar, en þeir voru 300 í heildina. Gefin er staðsetning hvers og eins stimpils ásamt notkunartímabili hans. Auk stakra frímerkja með númerastimplum má einnig að líta fallega númerastimpluð póstkort og bréf.

 

Rammi 71-75.

Icelandic numeral cancels.

Sveinn I. Sveinsson, Ísland. 5 rammar.

Sveinn sýnir umslög með númerastimplum (númerastimplarnir voru 300 í heildina). Sveinn raðar stimplunum eftir röð. Sveinn byrjaði að safna númerastimplum í kringum 1995. Hann hefur sýnt safnið á norrænum og alþjóða sýningum.

 

Rammi 76-80.

Postal usage of the Icelandic numeral-in-circle cancels 1903-1960.

Brynjólfur Sigurjónsson, Ísland. 5 rammar.

Í safninu er að finna 270 mismunandi númerastimpla á stökum frímerkjum og 60 umslög. Brynjólfur byrjaði að safna árið 2001 og sýnir nú safnið í fyrsta sinn. Safninu er skipt niður í 4 hluta eftir gerðum númerapóststimplanna. Lýsingar á burðargjöldum og aðrar rannsóknir er að finna í lýsingum neðan við umslög og áhugaverða stimpla.

 

Rammi 81-85.

Icelandic bridge cancels of type N1a.

Jóhannes Sigmarsson, Ísland. 5 rammar.

Jóhannes sýnir í fyrsta sinn safn um brúarstimpla af B1a gerð, en þeir stimplar tóku við af númerastimplum í ársbyrjun 1930. Safninu er raðað niður eftir sýslum og dæmi um stimplana gefið bæði á einstökum frímerkjum og á umslögum. Jóhannes byrjaði að safna brúarstimplum árið 2003 og það vekur undrun að sjá hversu langt hann er kominn á svo stuttum tíma.

 

Rammi 86-90.

Lýðveldið í 20 ár.

Rúnar Þór Stefánsson, Ísland. 5 rammar.

Í safninu er sýnd notkun frímerkja á umslögum á lýðveldistímanum frá 17. júní 1944 til 17. júní 1964. Þetta er fyrsta sinn sem þetta safn er sýnt.

 

Rammi 91-96.

Iceland 1972 – The Match of the Century Fischer vs. Spassky.

Mike Schumacher, Bandaríkin. 6 rammar.

Annað safnið hans Mike á ReykSýn, en hér er 15 kr. skákfrímerkið frá 1972 í aðalhlutverki. Sýnd eru bæði póstkort og umslög, sem gefin voru út til minningar um hið sögufræga skákeinvígi á tímabilinu milli 2. júlí 1972 fram til 3. september sama ár. Yfirlit yfir stimpla á 15 krónu frímerkinu er gefið ásamt öðru efni tengdu “einvígi aldarinnar”.

 

Rammi 97-98.

Vatnajokull & the Icelandic Glaciological Society Covers 1959-1963.

Mike Schumacher, Bandaríkin. 2 rammar.

Mike er eini sýnandinn á þessari sýningu sem kemur frá Bandaríkjunum og bjóðum við hann því alveg sérstaklega velkominn. Hann sýnir í 2 römmum umslög frá Jöklarannsóknarfélaginu og ferðum tengdum því félagi á Vatnajökul milli áranna 1959 til 1963. Dæmi um brúarstimpilinn “Vatnajökull” eru sýnd bæði á stökum frímerkjum og umslögum.

  

Rammi 99-106.

Zeppelin LZ 127.

Árni Gústafsson, Ísland. 5 rammar.

Í safninu er fjallað um ferðir LZ 127 loftfarsins um heiminn. Sýnd eru bæði bréf sem fóru með loftskipinu og frímerki sem gefin voru út í tengslum við ferðir þess. Megináhersla er lögð á íslensk bréf.

 

Rammi 107-111.

Av2 Postal forms & cachets.

Ólafur Elíasson, Ísland. 5 rammar.

Sýnd eru eyðublöð fyrir útreikning gjalda fyrir póst í opnum flutningi og dæmi um notkun þeirra. Einnig eru sýndir merkimiðar fyrir mismunandi tegundir póstsendinga með árituðum eða stimpluðum merkingum. Þá eru sýndar 37 stimplagerðir á bréfum af þeim 51 sem nú eru þekktar, auk handskrifaðra merkinga.

 

 

Póstsaga - erlend deild

 

Rammi 112-116.

Interrupted Mail of Scandinavia

Hallvard Slettebö, Noregur. 5 rammar.

Safnið sýnir póst til og frá Norðurlöndunum, sem lent hefur í óhöppum, á sjó, í lofti og á landi.

 

Rammi 117-120.

Danskir auglýsingastimplar

Magnús Sigurðsson, Ísland. 4 rammar.

Í safninu er að finna danska auglýsingastimpla frá 1924 fram til 1970 bæði á bréfum og afklippum. Aðeins 3 ár eru síðan Magnús byrjaði að safna saman umræddum stimplum.

 

 

Eins ramma deild

 

Rammi 121.

Gullfoss.

Kaj Librand, Svíþjóð. 1 rammi.

Árið 1931 gaf íslenska póststjórnin út lítil falleg frímerki með mynd af Gullfossi. Sýnandi lýsir hér mismunandi prentunum og mun á þeim hvað varðar tökkun frímerkjanna. Einnig eru hlutar úr 500 frímerkja rúllum gerð skil, en þær þóttu áhugaverð nýjung á sínum tíma.

 

Rammi 122.

Konungsförin til Íslands 1907.

Johnny Pernerfors, Svíþjóð. 1 rammi.

Hér eru sýnd póstkort og annað efni tengt konungsheimsókn Friðriks VIII árið 1907. Ítarlega er t.d. fjallað um sérstakan stimpil sem gerður var til heiðurs heimsókninni og saga hans krufin til mergjar.

 

 

Opinn flokkur

 

Rammi 123-127.

Hreppsstimplar.

Helgi Gunnarsson, Ísland. 5 rammar.

Sýndir eru hreppsstimplar víðsvegar að af landinu, bæði á atkvæðaseðlum og öðrum stjórnsýslu gögnum, en mest er sýnt af venjulega póstgengnum umslögum.

 

Rammi 128-130.

Peningabréfasendingar.

Páll A. Pálsson, Ísland. 3 rammar.

Páll sýnir meðal annars íslensk verðbréf send innanlands auk bréfa sem voru send til útlanda, bæði með íslenskum- og dönskum seðlum, sterlingspundum og  þýskum ríkismörkum. Einnig má sjá samanburð á gjaldmiðlum á umslögunum miðað við innihald. Bréfin eru sum hver frá þjóðþekktum Íslendingum. Auk þess er að finna í safni Páls erlend verðbréf frá Danmörku, Færeyjum, Grænlandi og Svíþjóð.

 

 

Kynningardeild

 

Rammi 131-135.

Þjóðskjalasafn Íslands Umslög og frímerki frá konungsríkinu.

Þjóðskjalasafn Íslands, Ísland. 5 rammar.

Í tilefni af 125 ára afmæli Þjóðskjalasafns Íslands var ákveðið að gefa yfirlit yfir bæði almenn- og þjónustuumslög með skildinga- og auramerkjum. Auk þess má sjá tveggja ramma sýnishorn úr Hans Hals safninu og einn ramma með síðum úr alþingishátíðarbókinni frá 1930.

 

Rammi 136-138.

Íslenskir númerastimplar.

Sverrir Helgason, Ísland. 3 rammar.

Einungis eru um 5 ár síðan Sverrir byrjaði að safna númerastimplum og má sjá að sú söfnun hefur gengið afbragðs vel. Sverrir sýnir sérvalda stimpla milli 1 og 173, en það eru þeir stimplar sem fyrst fóru í umferð árið 1903.

 

Rammi 139-143.

Íslensk jólamerki 1904-2006.

Sveinn I. Sveinsson, Ísland. 5 rammar.

Sýnd eru öll útgefin jólamerki, bæði stök og á umslögum. Sérstök áhersla er lögð á umslög með Thorvaldsens merkjum, merkjum Kvennfélagsins Framtíðarinnar á Akureyri og með Önundarfjarðar jólamerkjunum.

 

Rammi 144-146.

The stamps of Great Britain from Queen Victoria to The Coronation of Queen Elizabeth.

Thorolf Björklund, Færeyjar. 3 rammar.

Í safninu er að finna ensk frímerki frá miðri 19. öld til miðrar 20. aldarinnar.

 

Rammi 147.

Færeyingahöfn.

Don Brandt. Ísland. 1 rammi.

Færeyskir sjómenn sóttu á Grænlandsmið allt frá árinu 1925 og langt fram á níunda áratug síðustu aldar. Í safninu er að finna stimpla á umslögum frá Færeyingahöfn á Grænlandi, sem notaðir voru 1937 og fram til 1989.

 

Rammi 148-149.

Úrval af stimplum frá Færeyjum.

Don Brandt. Ísland. 2 rammar.

Hér sýnir Don okkur safn færeyskra brúarstimpla, auk stimpla með og án stjörnu. Stimplana er að finna bæði á umslögum og stökum frímerkjum. Sérstaka athygli vekur stimpillinn “Vestmannhavn” en hann var einungis notaður í einn dag.

 

Rammi 150.

Sléttuhreppur.

Don Brandt. Ísland. 1 rammi.

Slétturheppur hefur ekki verið í byggð síðan 1952 og er afskektasti hluti Vestfjarðakjálkans. Í þessum landshluta var háð einhver sú harðasta lífsbarátta hinna myrku alda Íslandssögunnar. Sýndir eru brúarstimplar, sem í notkun voru á Sléttuhreppi í Norður-Ísafjarðarsýslu frá 1930 og fram undir 1950. Stimplana er að finna á stökum frímerkjum, pörum og fjórblokkum.

 

Rammi 151-153.

Suður-Þingeyjarsýsla.

Don Brandt. Ísland. 3 rammar.

Sýndir eru stimplar frá Suður-Þingeyjarsýslu, bæði á stökum bréfum og umslögum. Don sýnir alla brúarstimpla nema Brettingsstaði, bæði á umslögum og á stökum frímerkjum.

 

Rammi 154.

Fiskar á frímerkjum.

Kristján Borgþórsson, Íslan., 1 rammi.

Mótívsafn, þar sem sýndar eru ýmsar tegundir af fiskum á frímerkjum.

 

Rammi 155-156.

Dýr í útrýmingarhættu.

Sigmar Sigurðsson, Ísland. 2 rammar.

Sigmar er gamalgróinn meðlimur í Félagi frímerkjasafnara og sýnir ýmisskonar dýr, sem eru í útrýmingarhættu, á frímerkjum og örkum.

 

Rammi 157.

Steindir og steingervingar.

Olga Steinunn Bjarnadóttir, Ísland. 1 rammi.

Sýndar steindir og steingervingar á óstimpluðum frímerkjum.

 

Rammi 158-159.

Símakort.

Kristinn Sigurðsson, Ísland. 2 rammar.

Hér eru sýnd símakort sem notuð voru í símasjálfsala, fyrirframgreidd símakort, gsm kort og skafkort frá mismunandi símafyrirtækjum.

 

Rammi 160.

Íslenskir seðlar

Myntsafnarafélag Íslands, Ísland. 1 rammi.

Úrval af seðlum frá tímum konungsríkisins og frá lýðveldistímanum.

 

 

Púlt 1-2.

Flugmerki

Eiríkur Líndal, Ísland. 2 púlt.

Safnið gefur yfirlit yfir þau einkennismerki sem notuð hafa verið af áhöfnum og öðrum starfsmönnum íslenskra flugfélaga allt frá 1945. Alls eru merki frá  rúmlega 25 félögum. Í safninu hefur verið reynt að spanna íslenska flugsögu í gegnum merkin sem notuð hafa verið. Merkin hafa aldrei verið sýnd áður.

 

Púlt 3-4.

Hermerki og mynt

Sævar Jóhannesson, Íslandi, 2 púlt.

Áskorendapeningar (Challenge Coins) frá Keflavíkurflugvelli, kveikjarar sérstaklega merktir og gerðir fyrir bandaríska herinn á Keflavíkurvelli og skartgripir gerðir úr íslenskri mynt fyrir breska og bandaríska hermenn er voru hér á landi, á stríðsárunum 1940-1945 og árið 1946.

 

Púlt 5-6.

Barmmerki

Sigfús Ólafsson, Íslandi. 2 púlt.

Sigfús sýnir íslensk einkennismerki.

 

Púlt 7.

Minnispeningar

Guðmundur Þórðarsson, Ísland. 2 púlt.

Sýnishorn af medalíum útgefnum af Anders Nyborg og Danskar jólaskeiðar framleiddar af A. Michelsen.

 

Púlt 8.

Um vinnslu á smáörk.

Íslandspóstur hf., Ísland. 1 púlt.

 

 

Bókmenntadeild

 

Icelandic numeral cancellation handbook.

Föreningen Islandssamlarna, Svíþjóð.

 

 

Stimplar Íslandspósts hf.

Félag frímerkjasafnara, Ísland.

 

Frímerkjablaðið.

Gunnar Rafn Einarsson, Ísland.

 

 

Sýningarnefnd:

Brynjólfur Sigurjónsson formaður, Árni Gústafsson, Sveinn Ingi Sveinsson, Kjartan J. Kárason, Magnús Sigurðsson, Gestur Baldursson, Kristinn Sigurðsson, Eiríkur Líndal, Gunnar Rafn Einarsson og Sigurður R. Pétursson.

 

Dómarar:

Sigurður R. Pétursson formaður dómnefndar, Thorolf Björklund, Jonas Hallström og Bengt Bengtson.

 

 

Opnunartími REYKSÝN 2007:

 

Fimmtudagur 11. október. Sýningin sett kl. 16, opið milli 17 og 19.

Föstudagur 12. október. Opið frá kl. 8 til 19.

Laugardagur 13. október. Opið frá kl. 12 til 18. Safnaramarkaður í Iðnó kl. 13 til 16.

Sunnudagur 14. október. Opið frá kl. 12 til 17.

 

 

 

Félag frímerkjasafnara er til húsa í Síðumúla 17 í Reykjavík. Opið hús er alla laugardaga frá kl. 13-16. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu félagsins www.frimerki.is/ff

 

Upplýsingar um starfsemi Myntsafnarafélag Íslands má finna á heimasíðu félagsins www.mynt.is

 

 

 
 
 

Aftur á forsíðu     Back