Fréttir

Um félagið

Starfsáætlun

Ganga í félagið

Gestabók

Félagatal

Uppboð og skipti

Frímerkjasöfnun

Áhugaverðir tenglar

Myndir

 

 

 

 

Stjórnarfundur Ff

Haldinn 27. okt 2007 kl. 12:30-13:30, Síðumúla 17.

Fundarmenn: Brynjólfur Sigurjónsson, Sveinn I. Sveinsson, Árni Gústafsson, Gestur Baldursson, Kjartan Kárason og Magnús Sigurðsson.

 

1) Uppgjör á ReykSýn 2007. Árni lagði fram bráðabirgðauppgjör, þar kom fram að tekjur af sýningunni hefðu numið uþb 400.000 kr en að gjöld hefðu verið nálægt einni milljón.

2) Stimplabók og skipting á söluhagnaði. Málið rætt og ákveðið að Árni og Brynjólfur gangi til samninga við Þór og Gest um endanlega niðurstöðu.

3) Rætt um afmælisrit og hvenær mögulegt verði að ljúka því. Sveinn skilar af sér um helginni viðtölum við valda meðlimi Ff. Kjartan á eftir að skanna meira af eldri myndum og gera ReykSýn 2007 góð skil. Nokkrar áhyggjur komu fram um að jólaösin hjá prentsmiðjum landsins væri nú þegar byrjuð og að erfitt gæti reynst að fá bókina prentaða fyrir jól, en þó er enn stefnt að því að ljúka gerð afmælisritsins 8. des (fyrir jólafund). Brynjólfur afhenti Kjartani gamlar myndir frá Magna R. Magnússýni af félagsstarfi Ff fyrstu árin.

4) Tölvukaup og internet tenging í Síðumúla 17. Kjartan telur bestu kaupin vera í Toshiba tölvu sem til sölu er í BT en hún er 2 GB, með Windows Vista stýrikerfi. Ákveðið var að fresta tölvukaupum þar til Póstsögustjóður gefur svar við umsókn til kaupanna. Internet tengingin kemur þá í kjölfarið.

5) Efni næsta fræðslufundar. Jóhannes Sigmarsson hefur þekkst boð um að kynna fyrir meðlimum Ff brúarstimpla safn sitt.

6) Uppboðsnefnd. Formaður lýsti skoðun sinni á því að uppboðsnefnd hefði ekki farið nægilega vel af stað eftir sumarfrí. Vonir standa til þess að úr þessu rætist.

7) Nýtt uppboðsfyrirtæki AA (Andonov og Arnason) leituðu til formans fyrr í vikunni um þrjú lítilræði, sem stjórn Ff ákvað að verða við, enda þótti sjálfsagt að hjálpa við bakið á þessu nýstofnaða uppboðsfyrirtæki.

8) Auglýsa mánaðarlega félagsfundi og uppboð í Morgunblaðinu. Fram kom að mögulegt er að fá slíkar auglýsingar á uþb 1.000 kr skiptið ef Mbl. fær kost á að nota auglýsinguna sem uppfyllingarefni eins og þeim hentar best, þá viku sem auglýsingin á að birtast. Það er talið nauðsynlegt að sýna með einhverjum hætti að félagið stendur fyrir starfsemi og í því fer fram blómlegt félagslíf. Brynjólfur tekur að sér að kanna kostnað og annað tengt þessari auglýsingu.

 

 

 
 
 

Aftur á forsíðu     Back