|
Laugardaginn 1. nóvember
mun Fanney Kristbjarnardóttir halda tveggja klukkutíma námskeið
í uppsetningu á frímerkjasöfnum með hjálp forritsins “Page
Maker”. Mun hún útbúa bæði leiðbeiningar fyrir mest notuðu
skipanirnar í forritinu og verkefni fyrir þátttakendur að leysa.
Námskeiðið hefst klukkan 11:00 stundvíslega. Nokkur tölvuþekking
er áskilin, og gott væri ef sem flestir sægju sér fært að mæta
með fartölvur. Þeir sem ekki hafa forritið “Page Maker”
nú þegar í tölvum sínum, mæti hálftíma fyrr (10:30). Þeir sem
ekki hafa yfir fartölvum að ráða eru þrátt fyrir það hvattir til
að mæta.

Hér má finna Word skjal með
helstu skipunum í Page Maker.
|