|
Aðalfundur Félags
frímerkjasafnara ...
....var haldinn fimmtudaginn 27. mars
síðastliðinn. Einn stjórnarmeðlimur gekk úr
stjórninni að þessu sinni, varaformaðurinn Sveinn Ingi
Sveinsson. Nýr inní stjórn kom sem aðstoðarmaður Jón Ólafsson,
en því miður hindruðu lög félagsins því að hægt væri að kjósa
hann með formlegum hætti. Mikið fjör var á uppboðinu eftir
fundinn enda áhugavert efni til sölu.
Hér fyrir neðan er að finna skýrslu stjórnar
fyrir starfsárið 2007/2008:
Skýrsla stjórnar FF fyrir
félagsárið 2007/2008
Ágætu fundargestir !
Starf
félagsins hefur tekið litlum breytingum sl. starfsár og hafa
félagsfundir verið haldnir annan fimmtudag hvers mánaðar auk
þess sem opið hús hefur verið á hverjum laugardegi allt árið.
Helstu
atburðir ársins voru sem hér segir: Á aðalfundi 16. mars 2006
var Brynjólfur Sigurjónsson kosinn formaður félagsins. Aðrir sem
kosnir voru í stjórn voru: Magnús Sigurðsson, Gestur Baldursson,
Árni Gústafsson, Kjartan Kárason og Sveinn Ingi Sveinsson.
Á fyrsta
stjórnarfundi var Sveinn Ingi valinn varaformaður, Árni
Gústafsson gjaldkeri og Kjartan Kárason ritari, Gestur
Baldursson varamaður og Magnús Sigurðsson meðstjórnandi. Við
tóku margir undirbúningsfundir næstu mánuðina í tengslum við 50
ára afmælissýningu Ff ReykSýn 2007, sem haldin var í Ráðhúsi
Reykjavíkur dagana 11.-14. október 2007. Fundargerðirnar er
mögulegt að nálgast á heimasíðu Ff. Hinum eiginlega afmælisdegi
var fagnað þann 11. júní með veglegri afmælisköku. Haldinn var
stjórnarfundur 16. júní og voru þar samþykktar reglur um merki
og viðurkenningar félagsins, ásamt leiðandi reglum varðandi
uppboð og uppboðsnefnd Ff. Reglur þessar er mögulegt að nálgast
á heimasíðu félagsins. Engir félagsfundir voru yfir sumartímann,
en opið hús engu að síður á laugardögum. Starfið byrjaði síðan
af krafti í september. 20. september hélt Saso Andonov
áhugaverðan fyrirlestur um skipspóst, sem var vel sóttur, yfir
20 manns mættu. Frímerkjasýningin ReykSýn var haldinn eins og
áður sagði dagana 11.-14. október og var vel sótt, enda Ráðhúsið
í alfaraleið. Var um rætt að sjaldan hefði jafn gott íslenskt
efni verið saman komið á einum stað, en vinir okkar í
Islandssamlarna frá Svíþjóð sóttu sýninguna heim og áttu um
helming sýningaefnis. Fimmtudaginn 15. nóvember hélt Jóhannes
Sigmarsson fyrirlestur um brúarstimpla, en hann var einn af
sýnendum á ReykSýn.
Safnaramarkaður var haldinn daginn eftir þann 12. nóvember í
samvinnu við Myntsafnarafélagið.
Laugardaginn 15. desember var jólafundur félagsins haldinn.
Fundarstjóri var Sveinn Ingi Sveinsson. Fundurinn var með
venjubundnu sniði, og byrjaði fundurinn klukkan þrjú eins og í
fyrra. Margir lögðu hönd á plóginn og voru það
frímerkjakaupmennirnir Bolli og Steingrímur sem gáfu vinninga í
happdrætti, ásamt góðum stuðningi frá Íslandspósti hf sem er
aðalstyrktaraðili fundarins með gjöfum sínum. Ekki var úthlutað
úr minningarsjóði Sigurðar Ágústssonar, en enginn unglingur
hefur komið fram sem þótt hefur uppfylla þau skilyrði sem sett
eru fyrir styrkveitingu.
Á
janúarfundi hélt Brynjólfur Sigurjónsson fyrirlestur um
gagnagrunn á sviði númerastimpla. Fyrirlesturinn var óvenju illa
sóttur, ekki mættu nema rúmlega 10 manns. Talið var að
handboltaleik hefði verið um að kenna!
Tveimur
dögum eftir fyrirlestur Brynjólfs hélt Fanney Kristbjarnardóttir
stutt og hnitmiðað námskeið í uppsetningu á frímerkjasöfnum með
hjálp forritsins “Page Maker”. Rúmlega 10 einstaklingar mættu.
Á
febrúarfundi (21. febrúar nánar tiltekið) kom Eðvarð T. Jónsson
frá frímerkjasölu Íslandspósts hf. og flutti fréttir af
frímerkjaútgáfum Íslandspósts hf. árið 2008 og ræddi um nýjungar
sem fram undan eru. Þessi fundur var mjög gagnlegur söfnurum og
vel sóttur.
Á öllum
félagsfundum voru haldnir flóamarkaðir í boði uppboðsnefndar en
í henni starfa: Gestur Baldursson, Sveinn Ingi Sveinsson og
Gísli Harðarsson, og eiga þeir lof skilið fyrir mikið
vinnuframlag. Er þeim hér með þökkuð óeigingjarnt starf á
síðasta starfsári.
Nokkur
fjölgun hefur orðið í félaginu á yfirstandandi starfsári og losa
meðlimir nú annað hundraðið á nýjan leik.
Umsjón með
húsi: Enginn sérstakur hefur haft umsjón með opnu húsi á
laugardögum, en Kristmundur Hannesson hefur séð um að opna húsið
klukkan 13:00. Árni Gústafsson sér eins og áður um
kaffiveitingar á félagsfundum.
Sýningar
félagsmanna: Félagar í FF sendu söfn sín á eftirfarandi sýningar
á síðasta starfsári: Eyfrím 2007 haldin á Akureyri 28. apríl
2007, Alþjóðleg frímerkjasýning í Sankti Pétursborg Rússlandi
19.-25. júní 2007 og ReykSýn 2007 haldinn 11.-14. október 2007.
Samstarf
við Íslandspóst: Samstarf við Íslandspóst hefur verið gott á
liðnu starfsári. Frímerkjasalan hefur keypt auglýsingu af
félaginu og styrkt það með því að kaupa helstu verðlista. Auk
þess kosta þeir nú heimasíðu Félags frímerkjasafnara
www.frimerki.is/ff. Á heimasíðunni er að finna flestar
grunnupplýsingar um FF auk fróðleiks um frímerki og
frímerkjafræði. Fljótlega á nýju almanaksári 2008 varð ljóst að
ekki yrði um meiri samvinnu að ræða milli Ff og
Myntsafnarafélags Íslands um Safnaradaga. Var því tekin sú
ákvörðun að Ff stæði í staðinn fyrir svokölluðum
„Markaðslaugardögum“. Þeir eru haldnir fyrsta laugardag í
hverjum mánuði og auglýstir sérstaklega í fjölmiðlum. Tveir
slíkir hafa verið haldnir og hafa gefist ágætlega.
Á
síðastliðnu starfsári fékk félagið úthlutað úr Frímerkja- og
póstsögusjóði 500.000 krónum fyrir Reyksýn 2007.
Safnið:
Safnið hefur komið út alls 197 sinnum, 8 sinnum á árinu 2007 og
hefur komið út þrisvar sinnum á þessu ári og er útlit fyrir að
það muni koma út áfram með svipuðu sniði. Ff stóð í fyrsta sinn
í langan tíma að útgáfu fræðirits. Um var að ræða bókina
„brúar-, rúllu- og vélstimplar Íslandspósts hf“. Höfundar
ritsins voru þeir Þór Þorsteins og Gestur Baldursson.
Prentkostnaður nam 120.000 kr en á móti kom styrkur frá
Frímerkja-og póstsögusjóði að upphæð 100.000 kr. Nokkuð seldist
af ritinu á Reyksýn.
Ýmis
verkefni liggja fyrir, er þar helst að nefna frímerkjasýningu í
tengslum við aðalfund LÍF dagana 23.-25. maí næstkomandi og
undirbúningur fyrir Nordiu 2009 sem haldinn verður í
Hafnarfirði.
Fyrir hönd FF
Brynjólfur Sigurjónsson
|