|
Afbrigði á yfirprentun frá
1926
(Höfundur: Brynjólfur
Sigurjónsson)
Starfræktur er í Danmörku Íslandsklúbbur og
gefur hann út rit sem nefnist Islands kontakt. Í riti númer 65
gefið út í maí 2008 var áhugaverð grein um afbrigði sem minnst
er á í verðlistanum Facit sem 159 v1. Um er að ræða lítinn krók
á vinstri hlið “E” á yfirprentuninni “EIN KRÓNA”. Einungis eitt frímerki í hverri örk ber
afbrigðið og þar sem upplag frímerkisins var 100.000, er ljóst
að einungis 1.000 frímerki bera afbrigðið góða. Fram til þessa
hefur það verið á huldu hvar í örkinni afbrigðið var staðsett.
Leyndardómurinn opinberaðist ekki fyrr en nýlega við tiltekt í
geymslu Félags frímerkjasafnara. Þar fundust í stórri möppu
gamlar svarthvítar ljósmyndir uppstækkaðar af örkum íslenskra
frimerkja. Þar á meðal var örkin af fyrrnefndri yfirprentun frá
1926. Við nánari eftirgrenslan kom í ljós að afbrigðið fannst
staðsett í örkinni í sæti númer 59.

Umrætt afbrigi, krókurinn á
“E”-inu.
Þess má að lokum geta að ljósmyndir arkanna
eru upprunnar úr Hans Hals safninu og voru prentaðar árið 1973 á
hundrað ára afmæli íslenska frímerkisins að undirlagi meðlima
Félags frímerkjasafnara. Hugsunin var sú að meðlimir hefðu
möguleika á að skoða galla í prentunum án þess að þurfa að fara
í upprunalegu arkirnar.



|