Fréttir

Um félagið

Starfsáætlun

Ganga í félagið

Gestabók

Félagatal

Uppboð og skipti

Frímerkjasöfnun

Áhugaverðir tenglar

Myndir

 

 

 

 

Jólamerkin frá Akureyri

(Höfundur: Sveinn Ingi Sveinsson)

Fyrir um ári síðan fékk ég tölvupóst frá skiptifélaga mínun í Bandaríkjunum Gary Athelstan. Hann vantaði stakt jólamerki frá 1950 en var að furða sig á umslagi sem hann átti með því merki sem stimplað var 1947 með tveimur mismunandi stimplum. Þetta varpaði

fram spurningum varðandi það hvort ártöl væru rétt í jólamerkjalistum. Í bókinni Kvenfélagið Framtíðin 1894-1994 er gefinn listi yfir útgáfuár og teiknara. Þessi listi var fenginn frá Árna Friðgeirssyni frá Akureyri sem talinn er hafa þekkt manna best til útgáfunnar. Samkvæmt listanum á sjúkrahúsmerkið án ártals að hafa verið notað 1947 og svo yfirprentað 1949 og móðir og barn án ártals 1950.Merkið sem sýnir móðir og barn, sem talið hefur verið frá 1950, er nánast ófáanlegt í örk, en merkið frá 1951 með sömu mynd er ekki mjög sjalgæft í örk. Arkir með sjúkrahúsmerkjum eru ekki mjög sjaldgæfar, þó er sú með yfirprentuninni 1949 mun fágætari en sú sem ekki er yfirprentuð.

Bakhlið umslags í eigu Gary Athelstan með jólamerki sem talið var gefið út 1950, en hér bundið á umslag með Chicago stimpli frá 1947.

 

Framhlið sama umslags.

Óskað er eftir því að þeir sem eigi stimpluð merki eð bréf með þessum útgáfum láti í sér heyra. Ef ekkert finnst verður væntalega að færa merkið frá 1950 til 1947.

 
 
 

Aftur á forsíðu     Back