|
Margir muna eftir hinum
umdeilda gagnagrunni á heilbrigðissviði sem fyrirtækið Íslensk
erfðagreining stóð að. Gagnagrunnur sá er hér verður til umræðu
fimmtudaginn 17. janúar kl. 20:00 er ekki eins umdeildur og stór
í sniðum en samt áhugaverður engu að síður. Almennt má segja um
gagnagrunna að þeir eru samsafn upplýsinga sem hægt er að leita
í til að svara áhugaverðum spurningum. Upphaf
númerastimplagagnagrunnsins er að leita aftur til ársins 2001 er
Brynjólfur hóf að safna númerastimplum. Var þá mikið rætt um að
ýmsir verðlistar endurspegluðu ekki rétt verð miðað við
raunverulega sjaldgæfni. Í dag er að finna um 1.000
númerastimpla umslög og 10.000 einstaka stimpla í grunninum. Í
fyrirlestrinum verður tiplað á nokkrum áhugaverðum niðurstöðum
úr gagnagrunninum.
|