|
Grimsby Fish Dock
(Höfundur: Árni Gústafsson)
Í byrjun síðustu aldar voru
póstferðir milli Ísland og Evrópu ekki nógu örar og því nýttu
menn sér flestar skipaferðir til póstflutninga og því er íslensk
póstsaga ríkulega skreytt með erlendum leiðarstimplum. Hér er
dæmi um óvenjulega póstleið:

Viðskiptabéf frá Rekjavík til
Moss í Noregi. Bréfið er stimplað í Reykjavík 15.11.29. Skipið
hefur komið fyrst að landi í Grimsby og þar eru álímd frímerki 2
1/2 pence og þau ógild með póststimplinum Grimsby Fish Dock
dagsett 21.11.29. Burðargjaldið í gegnum UPU var 35 aurar og 80
aurar fyrir express, sem er rétt burðargjald og því voru bresku
frímerkin óþörf, en þau gera bréfið mun skemmtilegra. |