|
Ég rakst á þetta fallega bréf
um daginn. Það var sent í ábyrgð til Basel í Sviss, stimplað í
Reykjavík 31.3.1911. Fimm dögum síðar, stimplað í Runcorn, sem
er breskur bær við ána Mersey í Cheshiresýslu. Borgin Liverpool
stendur 21 km neðar við ána. Bréfið var áframsent til Liverpool
þann sama dag og bakstimplað með ábyrgðarstimpli. Á Englandi
tíðkaðist að merkja ábyrgðarbréf með bláum krítarkrossi. Bréfið
var síðan bakstimplað við móttöku Í Basel 7.4.1911. Aðeins 7
daga á leiðinni til Sviss.
|