|
Til þess að efla
félagsstarfið enn frekar hefur stjórn Ff tekið þá ákvörðun að
gera fyrsta laugardag í hverjum mánuði að svokölluðum
markaðslaugardegi í samvinnu við Myntsafnarafélag Íslands.
Fyrirkomulag þeirra verður með þeim hætti að allir meðlimir
Félags frímerkjasafnara sem geyma áhugavert efni í skúmaskotum
heimavið eru beðnir um að taka það með sér og reyna að selja,
til að auka á stemninguna. Sami opnunartími eins og vanalega frá
13:00-15:00. Markaðslaugardagar fyrir árið 2008 verða
eftirfarandi; 2. febrúar, 1. mars, 5. apríl, 3. maí, 7. júní, 5.
júlí, 2. ágúst, 6. september, 4. október, 1. nóvember og 6.
desember.
|