|
Nokkur uppsveifla
virðist um þessar mundir vera á fjölda íslenskra frímerkja
sýnenda. Sá áhugi endurspeglast á fjölda umsækjenda fyrir Nordiu
2008 sem haldin verður í Noregi síðar á þessu ári, nánar
tiltekið daga 23.-26. október í Stavanger. Nú er ljóst að
eftirfarandi aðilar koma til með að sýna; Rúnar Þór Stefánsson
með stríðssafn, Árni Gústafsson með skipssafn, Sveinn Ingi
Sveinsson og Brynjólfur Sigurjónsson með númerastimplasöfn,
Sigtryggur Eyþórsson með bréfspjaldasafn, Hjalti Jóhannesson með
upprunastimplasafn og Ólafur Elíasson með AV2 safn. Auk þess á
Árni Gústafsson umboðsmaður sýningarinnar hér á landi, von á að
í hópinn bætist a.m.k tvö önnur söfn.
|