|
Safnaramarkaður Gerðubergi
Laugardaginn 6.
september n.k. verður haldinn Safnaramarkaður í Gerðubergi. Þar
geta safnarar og grúskarar fundið eitthvað við sitt hæfi en
markaðurinn er haldinn í tengslum við sýninguna Stefnumót við
safnara III. Markaðurinn verður opinn frá kl. 13-16.

Söluborð kosta 2.000 kr. Upplýsingar og skráning: Hringið í síma
575 7700 eða sendið póst á netfangið
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is
Sýningin Stefnumót við safnara III er tileinkuð hljóðfærum og
ýmsum hlutum sem allir tengjast tónlist á einn eða annan hátt.
Þar gefur að líta ýmis konar hljóðfæri sem endurspegla bæði
ástríðu nokkurra hljóðfærasafnara og einnig þá þróun hljóðfæra
sem hefur orðið í gegnum aldirnar; allt frá frumstæðum
ásláttarhljóðfærum til elektrónískra stílófóna.
Nokkrir
safnarar sem taka þátt í sýningunni verða á staðnum til að svara
spurningum forvitinna gesta. Auk þess verður Jón Baldur
Hlíðberg, teiknari, með leiðsögn um sýningu sína Kynjaskepnur úr
íslenskum þjóðsögum. |