|
Sýslustimpill frá Strandasýslu
(Höfundur: Jóhannes Sigmarsson)
Skemmst er að minnast hreppsstimplasafns Helga
Gunnarssonar á ReykSýn en þar gaf að líta embættisstimpla
víðsvegar að af landinu, bæði á atkvæðaseðlum og öðrum
stjórnsýslu gögnum. Flestir stimplarnir í safni Helga voru frá
síðari hluta 20. aldarinnar. Nokkuð er til af eldri stimplum.
Meðal annars rakst Jóhannes Sigmarsson, sem annars er betur
þekktur fyrir brúarstimpla, á áhugaverðan embættisstimpil, gefum
Jóhannesi orðið:

“Hér gefur að líta embættisstimpil frá
Strandasýslu 1905. Stimpillinn er inní bréfi sem er ófrímerkt.
Það virðist hafa tíðkast að póstur var sendur á milli bæja í
Strandasýslu, og örugglega víðar, ófrímerktur. Sjálfur á ég
töluvert safn af bréfum úr Strandasýslu, sem bæði eru
forfilatelísk og filatelísk frá um 1840-1910 og eiga þau það
sameiginlegt að vera ófrímerkt. Engu að síður finnst mér mikill
sjarmi yfir þeim og ekki spillir þegar maður finnur svona
fallegan stimpil eins og þennan.” |