Fréttir

Um félagið

Starfsáætlun

Ganga í félagið

Gestabók

Félagatal

Uppboð og skipti

Frímerkjasöfnun

Áhugaverðir tenglar

Myndir

 

 

 

 

Frímsýn 2009

 

 
 

Stjórn Ff hefur ákveðið að sýningin Frímsýn 2009 verði haldin helgina 24.-25. janúar næstkomandi í sýningarsal Síðumúla 17. Öllum meðlimum Ff er boðið að sýna söfn sín og þurfa söfnin ekki að vera nein sýningarsöfn. Við óskum frekar eftir að þið sýnið okkur sitt lítið af hverju og gefið okkur hinum innsýn í hvað þið eruð að bardúsa í frístundum ykkar. Hér er einnig síðasta tækifærið fyrir þá sem áhuga hafa á því að sýna söfn á Nordiunni 2009 að ná stigalágmarki á landasýningu. Söfn verða sett upp föstudaginn 23. janúar milli klukkan 17:00-19:00.

 

 
 

Aftur á forsíðu     Back