|
Dagskrá.
1. Verkaskipting stjórnar.
Gögn: Engin. Árni Þór Árnason var kosinn formaður á aðalfundi
fyrr um kvöldið. Árni Gústafsson gjaldkeri. Kjartan J. Kárason
ritari. Magnús Sigurðsson meðstjórnandi Hallur Þorsteinsson
meðstjórnandi Gústaf A. Gústafsson var kosinn varamaður á
aðalfundi fyrr um kvöldið.
2. Áherslur í starfi. Gögn:
Engin. Farið yfir helstu atriði sem fram komu á aðalfundinum
fyrr um kvöldið. Efla samskipti félaga á milli. Hallur skrifar
stutta grein í næsta Safn þar sem félagar verða beðnir um að
senda inn netföng sín. Þeir sem vilja, geta líka sent inn
upplýsingar um sig, t.d. söfnunarsvið, sem væri hægt að birta á
heimasíðu félagsins. HÞ 50 ára afmælisrit félagsins. Setja nýja
stjórnarmeðlimi inn í stöðu málsins á næstu fundum. Nánari
vinnsla á myndum Hjalta Jóhannessonar. Hjalti hefur fært 8 mm
myndir, sem teknar voru af ýmsum viðburðum í félagsstarfinu,
yfir á starfrænt form. Um er að ræða yfir 4 klst. af efni sem
þarf að vinna úr. Allir sammála um að eitthvað þyrfti að gera í
málinu. Ljósmyndir Páls Ásgeirssonar. Páll átti mikið safn
ljósmynda úr félagsstarfinu sem væri áhugavert að birta, t.d. á
heimasíðu félagsins.
3. Heimasíða félagsins. Gögn:
Engin. Gústaf tilbúinn að vera ritstjóri heimasíðunnar. Þarf
tæknimann til að lagfæra síðuna og vera til aðstoðar.
4. Norræna frímerkjasýningin
Nordia 2009. Gögn: Engin. Sýningin verður haldin í Hafnarfirði,
29. til 31. maí. Félagið mun þurfa að aðstoða á ýmsan hátt. ÁG
og KK eru í stjórn LÍF og í sýningarnefndinni. Nú þegar hefur
verið óskað eftir að félagið taki á móti erlendum gestum í
Síðumúla 17 fimmtudaginn 28. maí. Væntanlega þarf að vera með
veitingar. Einnig er óskað eftir að frímerkjafélögin verði með
happadrætti á sýningunni. Félögin fá sérstakan bás á sýningunni
til að kynna starfsemi sína.
5. Önnur mál/sögustund.
Heiðursverðlaunin sem Douglas Storckenfeldt fékk á ReykSýn 2007,
málverk sem gefið var af Árnason & Andanov, er enn hjá ÍSSPOR,
Sigurði R. Péturssyni. Fyrri formaður hafði lofað Douglas að
koma málverkinu til hans í Svíþjóð og seinna hafði Saso tekið
það að sér. Árni Þór gengur í málið. ÁÞÁ
6. Næsti fundur. Laugardaginn
18. apríl.
Aðgerðalisti: 19.03.2009-1.
Safna netföngum og upplýsingum um félagsmenn. Hallur skrifar
grein í næsta Safn og biður félagsmenn um að senda inn netföng
og upplýsingar um söfnunarsvið sín. Félagsmenn geta ákveðið
hvort upplýsingarnar verða birtar, t.d. á heimasíðu félagsins.
HÞ 19.03.2009-2. Koma heiðursverðlaunum ReykSýn 2007 í réttar
hendur. Árni Þór finnur lausn á málinu.
ÁÞÁ |