|
Margir frímerkjasafnarar
eru farnir að safna póstkortum af gömlum bréfhirðingum svo og
kauptúnum þar sem póstafgreiðsla var. Sum hver eru algeng og svo
eru önnur sjaldséðari. Til dæmis eru til mörg póstkort frá
Siglufirði en frekar fá frá Ólafsfirði. Kannski var Siglufjörður
nafli Íslands þegar síldin veiddist og því mikið ljósmyndað. Ég
rakst á þetta póstkort um daginn, sem er eitt af örfáum sem ég á
frá Ólafsfirði.

|