|
Starf félagsins hefur
tekið litlum breytingum sl. starfsár og hafa félagsfundir verið
haldnir annan fimmtudag hvers mánaðar auk þess sem opið hús
hefur verið á hverjum laugardegi allt árið.
Helstu atburðir ársins voru
sem hér segir: Á aðalfundi 27. mars 2008 var Brynjólfur
Sigurjónsson kosinn formaður félagsins. Aðrir sem kosnir voru í
stjórn voru: Árni Gústafsson, Kjartan J. Kárason, Magnús
Sigurðsson, Gestur Baldursson og Jón Ólafsson.
Á fyrsta stjórnarfundi var
Árni Gústafsson skipaður gjaldkeri, Kjartan J. Kárason ritari og
varaformaður, Gestur Baldursson og Magnús Sigurðsson
meðstjórnendur, Jón Ólafsson varamaður.
Félagsfundir: 17. apríl 2008
hélt Gestur Baldursson áhugaverðan fyrirlestur um Myndefni
frímerkja. Góður rómur var gerður að þessum fyrirlestri og
fulltrúum Íslandspósts sent afrit af fyrirlestrinum til
sérstakrar skoðunar. 29. maí 2008 var haldið stórt uppboð með
155 uppboðsnúmerum. Engir félagsfundir voru yfir sumartímann, en
opið hús engu að síður á laugardögum. Starfið byrjaði síðan af
krafti í september. Laugardaginn 27. september 2008 var ráðgert
að Össur Kristinsson myndi halda stutt námskeið í meðhöndlun
frímerkja (þ.e. hvernig ætti að leysa upp frímerki / pressa og
þerra). Gæludýrabúðin Fiskó að Dalvegi í Kópavogi hafði boðist
til að gefa frímerki. Því miður náðist ekki nægileg þátttaka og
ekkert varð að námskeiðinu þess vegna. 25. september 2008 hélt
Indriði Pálsson fyrirlestur sem hann kallaði: „rabba“ um
uppsetningu og skipulag á frímerkjasöfnum. Fundur þessi var vel
sóttur, yfir 20 manns mættu. 1. nóvember 2008 hélt Fanney
Kristbjarnardóttir tveggja klukkutíma námskeið í uppsetningu á
frímerkjasöfnum með hjálp forritsins “Page Maker”. 5
einstaklingar tóku þátt. 23. október 2008 hélt Þorvaldur Þórsson
fyrirlestur sem fjallaði um yfirprentunina “Í-GILDI ’02-’03”.
20. nóvember 2008 kynnti Sigurður R. Pétursson fyrir söfnurum
stóru Nordíu sýninguna sem haldin verður hér á landi, nánar
tiltekið í Hafnarfirði dagana 28-31 maí 2009. 22. janúar hélt
Saso Andonov fyrirlestur um Íslenska kórónustimplar. 19. febrúar
2009 hélt Vilhjálmur Sigurðsson frá Íslandspósti hf. kynningu á
frímerkjaútgáfum ársins 2009 hjá Frímerkjasölunni og nýjar
áherslur varðandi almenna kynningu þeirra.
Á öllum félagsfundum voru
haldnir flóamarkaðir í boði uppboðsnefndar en í henni starfa:
Gestur Baldursson, Sveinn Ingi Sveinsson og Jóhannes Sigmarsson,
og eiga þeir lof skilið fyrir mikið vinnuframlag. Er þeim hér
með þökkuð óeigingjarnt starf á síðasta starfsári.
Frímerkjasýningar Aðeins um frímerkjasýningar:
Frímerkjasýningin Frímsýn var
ekki haldinn á árinu 2008 heldur var hún færð aftur til 24.-25.
janúar 2009 til að gefa söfnurum meiri tíma til að setja upp
söfn fyrir Nordiu 2009 í Hafnarfirði. Félagar í FF sendu söfn
sín á eftirfarandi sýningar á síðasta starfsári: Ísrael (Hjalti
Jóhannesson, Árni Gústafsson), Rúmenía (Hjalti Jóhannesson, Árni
Gústafsson, Rúnar Þór Stefánsson, Sveinn Ingi Sveinsson), Vín
(Árni Gústafsson, Sigtryggur Eyþórsson), Pragh (Hjalti
Jóhannesson, Árni Gústafsson, Sigurður R. Pétursson), Stavanger
(Sveinn Ingi Sveinsson, Brynjólfur Sigurjónsson, Árni
Gústafsson, Hjalti Jóhannesson, Rúnar Þór Stefánsson, Ólafur
Elíasson, Eiður Árnason, Sigtryggur Eyþórsson).
Annað sem tengist starfsemi
Ff: Umsjón með húsi: Enginn sérstakur hefur haft umsjón með opnu
húsi á laugardögum, en Kristmundur Hannesson hefur séð um að
opna húsið klukkan 13:00. Árni Gústafsson sér eins og áður um
kaffiveitingar á félagsfundum. Fjöldi félagsmanna hefur staðið í
stað frá síðasta uppgjöri. Félagatalið telur tæplega 200
meðlimi. Samstarf við Íslandspóst: Samstarf við Íslandspóst
hefur verið gott á liðnu starfsári. Frímerkjasalan hefur keypt
auglýsingu af félaginu og styrkt það með því að kaupa helstu
verðlista. Auk þess kosta þeir nú heimasíðu Félags
frímerkjasafnara
www.frimerki.is/ff. Á heimasíðunni er að finna flestar
grunnupplýsingar um FF auk fróðleiks um frímerki og
frímerkjafræði.
Eins og í fyrra hefur Ff
staðið fyrir svokölluðum „Markaðslaugardögum“. Þeir eru haldnir
fyrsta laugardag í hverjum mánuði og auglýstir sérstaklega í
morgunblaðinu bæði á föstudegi og laugardegi. Góð venja er
kominn á þetta fyrirkomulag og leggja fleiri leið sína uppí
Síðumúla þessa auglýstu laugardaga til að fá verðmat á söfn sín
og einnig til að selja og eða kaupa efni. Safnið (fréttabréf
félagsins) hefur komið út alls 206 sinnum, 8 sinnum á árinu 2008
og hefur komið út þrisvar sinnum á þessu ári og er útlit fyrir
að það muni koma út áfram með svipuðu sniði.
Fyrir hönd FF Brynjólfur
Sigurjónsson
|