|
Nýlega dúkkaði upp umslag sem
er í meira lagi athyglivert fyrir margra hluta sakir. Eins og
sjá má er það sent frá Vestmannaeyjum til Hafnarfjarðar árið
1934, með flugpósti, að því er virðist. Alþingishátíðarfrímerkin
mátti einungis nota sem greiðslu burðargjalds í skamman tíma
árið 1930, svo strax vakna spurningar um notkun þessa merkis
hér. Burðargjaldið sjálft (10 aurar) er einnig of lágt miðað við
flugpóst, hefði a.m.k. átt að vera 17 aurar (7 aurar fyrir
prentað mál + 10 aurar fyrir flugpóst). Svo vaknar spurningin um
hvort almennt hafi verið flogið með póst frá Vestmannaeyjum á
þessum tíma? Póstflugi á Íslandi hafði verið hætt árið 1931, en
eflaust tóku flugvélar póst framhjá kerfinu fyrir vini og
kunningja gegn einhverri þóknun. Er svo raunin hér, sem gæti
útskýrt frímerkið og burðargjaldið?
“Póst”stimpillinn er einnig
athygliverður. Þar sem dagsetningarlína stimpilsins hlýtur að
hafa þurft að vera breytileg, er ekki um hefðbundinn einfaldan
gúmmístimpil að ræða. Hefur einhver séð þennan stimpil fyrr?
|