|
Nú eru þekktar a.m.k. fimm
afstimplanir af meðfylgjandi stimpli, bláum ferhyrndum stimpli
með áletruninni “Póstur og sími – dagsetning – Hvammstangi”.
Spanna dagsetningar þeirra allra tímabilið 2. – 17. febrúar
1963. Ekki er vitað með vissu hvers vegna gripið var til þessa
stimpils, né heldur hvenær og af hvaða tilefni hann var búinn
til. Hafði gamli brúarstimpillinn B2c1 skemmst eða týnst? Gæti
verið að millibilsástand hafi skapast meðan beðið var eftir nýja
stimplinum B8e? Og af hverju þekkist meðfylgjandi blái
Pósts&Síma stimpillinn aðeins frá í febrúar? Með hvaða hætti
voru frímerki á pósti frá Hvammstanga ógilt framá haustið?
Allar nánari upplýsingar og
ábendingar varðandi póst frá Hvammstanga árin 1962 -1966 væru
vel þegnar. Þetta er póstsögulegt gat sem vert er að stoppa í !
Gestur Baldursson sturi@mi.is
|