Fréttir

Um félagiđ

Starfsáćtlun

Ganga í félagiđ

Gestabók

Félagatal

Uppbođ og skipti

Frímerkjasöfnun

Áhugaverđir tenglar

Myndir

 

 

 

 

Íslenski fáninn á frímerkjum

Höfundur: Gestur Baldursson

 
 

 

Hinn íslenski ţjóđfáni, sem og ríkisfáni Íslands og skjaldarmerki hafa nú prýtt íslensk frímerki međ reglulegu millibili í 77 ár.  Hinn ţríliti fáni, sem á rćtur sínar ađ rekja til ársins 1906 og fyrst dreginn ađ húni ţann 1.desember 1918, prýddi fyrst frímerki áriđ 1930, 40 aura merkiđ úr Alţingishátíđarseríunni.  Alls hefur fáninn í hinum ýmsu myndum komiđ viđ sögu á rúmlega 25 frímerkjum og smáörkum síđan ţá, síđast sem hluti jólaskrauts á 45 króna jólafrímerki ársins 2002.  Einnig hefur fáninn prýtt forsíđur a.m.k. tveggja frímerkjahefta. 

 

Skjaldarmerki Íslands hefur einnig komiđ viđ frímerkjasöguna, til ađ mynda má finna landvćttamerkiđ fyrra á Leifs Eiríkssonar blokkinni frá 1938, lýđveldismerkiđ á 20 ára afmćlismerkinu frá 1964 og gamla fálkaskjaldarmerkiđ má svo sjá á 250 króna Landsbankamerkinu frá 1986.   Skjöldurinn einn og sér hefur einnig ratađ á nokkur merki, einkum á afmćlis- og hátíđarútgáfur hverskonar.

 

Segja má ţví ađ fáninn og skjaldarmerkiđ séu samofin frímerkjasögu lands og ţjóđar, og fátt komiđ jafnoft viđ sögu sem myndefni á löngum ferli íslenska frímerkisins.   

  

 

Íslenski fáninn hefur einnig prýtt frímerki annara landa. Hér má sjá hann á merkjum Sameinuđu ţjóđanna (úr fánaseríunni frá 1986) og á merki frá Portúgal (í tilefni 25 ára afmćlis EFTA áriđ 1985).

 

 
 

Aftur á forsíđu     Back